
Landsbankinn
Hjá Landsbankanum starfar fjölbreyttur hópur fólks með ólíka þekkingu, reynslu og bakgrunn. Reynslan sem býr í starfsfólkinu styrkir stoðir rekstrarins á meðan fjárfesting í öflugri endurmenntun, starfsþróun og ráðning nýrra starfskrafta tryggir stöðuga framþróun.
Við erum hreyfiafl í samfélaginu og vinnum ötullega að því að rödd bankans sé sterk, traustvekjandi, að hún fylli starfsfólk stolti og efli árangursdrifna menningu.

Sérfræðingur í innri áhættulíkönum
Landsbankinn leitar að öflugum sérfræðingi í deildina Innri áhættulíkön innan Áhættustýringar bankans. Við leitum að liðsfélaga sem býr yfir mikilli þekkingu á hönnun og notkun líkana til að leysa krefjandi verkefni, hefur áhuga á að breyta gögnum í hagnýtar upplýsingar og hæfileika til að miðla niðurstöðum á auðskiljanlegan máta.
Verkefni deildarinnar snúa að þróun líkana sem meta útlánaáhættu bankans með áreiðanlegum hætti og stuðla þannig að upplýstri og gagnadrifinni ákvarðanatöku. Unnið er úr þeim gögnum sem nauðsynleg eru fyrir þróun líkana og gerðar eru gagnagreiningar tengdar útlánaáhættu fyrir önnur svið bankans sem og eftirlitsaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þróun og viðhald á tölfræðilíkönum til að meta útlánaáhættu
- Gagnavinnsla fyrir þróun líkana
- Stuðningur við þróun á öðrum líkönum tengdum útlánaáhættu og eiginfjárútreikningi
- Gagnagreiningar, kynningar og samskipti við hagsmunaaðila innan bankans og utan vegna ofangreindra verkefna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem stærðfræði/tölfræði, verkfræði og gagnavísindi. Framhaldsmenntun er kostur
- Ítarleg þekking á aðferðum við smíði tölfræðilíkana
- Reynsla af forritun í SAS, R, eða öðru sambærilegu forritunarmáli
- Þekking á gagnavinnslu og SQL fyrirspurnarmálinu er kostur
- Reynsla af áhættustýringu er kostur
Auglýsing birt28. maí 2025
Umsóknarfrestur10. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Reykjastræti 6
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri; Úttektir, eftirlit og ráðgjöf
VERKVIST

Data analyst and reporting specialist
Planet Youth

Verkefnastjóri með skráningu fasteigna
Kópavogsbær

Við erum að ráða í áhættu-og gæðadeild Deloitte
Deloitte

Verkefnastjóri - Reyðarfjörður
VHE

Sérfræðingur í Öryggisstjórnun
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Skipuleggjandi viðhalds / Maintenance Planner
Alcoa Fjarðaál

Sérfræðingur í flutningum / Logistics Specialist
Alvotech hf

Director Technical Operations
Icelandair

Verkefnastjóri á skrifstofu áhættu- og fjárstýringar
Kópavogsbær

Verkefnastjóri við borframkvæmdir
Jarðboranir

Deildarstjóri byggingarmála
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar