Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Verkefnastjóri með skráningu fasteigna

Verkefnastjóri með skráningu fasteigna annast umsýslu og skráningu gagna er varðar fasteignir í kerfum HMS og Kópavogsbæjar. Hann er tengiliður Kópavogsbæjar við fasteignaskrá HMS og vinnur með öðum deildum á umhverfissviði í skráningu gagna í gagnasjá.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast samskipti og skráningu lóða og fasteigna í Kópavogi hjá HMS, samkvæmt gildandi lögum og reglugerðum.
  • Umsýsla á innlestri/skráningu á gögnum byggingarfulltrúa m.a. skráningartöflum.
  • Aðstoðar við yfirferð á gögnum vegna byggingarfulltrúa.
  • Aðstoðar við úttektir bygginga.
  • Innleiðing rafrænna gagna byggingarfulltrúa og skráningu þeirra í gagnasjá.
  • Starfar í teymi ásamt tækniteiknara og verkefnastjóra landupplýsinga.
  • Annast almenna upplýsingafjög og sendir út bréf um skráningu fasteigna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla í skráningu fasteigna í ,,bygging" æskileg.
  • Góða reynslu og þekking á lögum og reglugerðum er varða mannvirki, skráningar og merki fasteigna.
  • Reynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg.
  • Almenn tölvukunnátta.
  • Þekking á skjalavistunarkerfi t.d. ONE æskileg.
  • Mjög góða hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagsfærni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins. 

Auglýsing birt28. maí 2025
Umsóknarfrestur16. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar