VERKVIST
VERKVIST
VERKVIST

Verkefnastjóri; Úttektir, eftirlit og ráðgjöf

Ný og öflug verkfræðistofa leitar eftir kröftugu og metnaðarfullu fagfólki til framtíðarstarfa.

Við hjá VERKVIST leitum að drífandi og faglegum einstaklingi með reynslu af verkefnastýringu, ráðgjöf og eftirliti á framkvæmdum og við endurbætur. Ef þú brennur fyrir vönduðum vinnubrögðum, framúrskarandi lausnum og öflugu samstarfi – þá viljum við heyra frá þér!

Um starfið

Við leitum að öflugum liðsfélaga sem:

  • Hefur reynslu af eftirliti á byggingarframkvæmdum af fagmennsku og ábyrgð

  • Sinnir ráðgjöf til viðskiptavina og hönnunarteyma um hagkvæmar og traustar lausnir

  • Stýrir verkefnum af festu, heldur utan um framvindu og tryggir gæði í öllum verkhlutum

  • Leggur sitt af mörkum við þróun og nýsköpun innan fyrirtækisins

  • Leggur metnað í samstarf við verkkaupa, verktaka og aðra lykilaðila

  • Tekur þátt í þróun vinnuferla og framtíðarlausna innan VERKVIST

Helstu verkefni og ábyrgð

Úttektir og ástandsskoðanir

Eftirlit 

Verkefnastjórn

Ráðgjöf 

Verklýsingar og útboðsgögn

Ýmis önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

Byggingarverkfræði, byggingarfræði, byggingartæknifræði, húsasmíðameistari eða sambærilegt

Reynsla af byggingarframkvæmdum og eftirlitsstörfum er skilyrði

Reynsla af verkefnastjórn og utanumhald verkefna

Góð samskiptahæfni og virðing fyrir samstarfi

Jákvæðni, sjálfstæði og vilji til að vaxa með verkefnunum

Frumkvæði og fagmennska

Fríðindi í starfi

Við bjóðum upp á:

  • Fjölbreytt og spennandi verkefni þar sem þú getur haft áhrif
  • Umhverfi sem styður við bæði faglegan og persónulegan vöxt
  • Virka liðsheild þar sem samstarf og stuðningur skipta máli
  • Sveigjanleika, traust og jafnrétti í vinnuaðstæðum
  • Fjölskylduvænan vinnustað
  • Skemmtilegt og hvetjandi félagslíf – við fögnum litrófi lífsins líka utan vinnutíma
  • Samkeppnishæf laun 
  • Heilsueflandi vinnustað
  • Góða innivist á vinnustað
Auglýsing birt29. maí 2025
Umsóknarfrestur20. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ByggingafræðingurPathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar