Eignaumsjón hf
Eignaumsjón hf
Eignaumsjón hf

Sérfræðingur á fjármálasviði

Við hjá Eignaumsjón óskum eftir að ráða sérfræðing á fjármálasvið félagsins.

Vegna aukinna umsvifa leitum við að áhugasömum og lífsglöðum liðsfélaga á fjármálasvið félagsins. Umsækjandi þarf að hafa gaman af tölum og vera tilbúinn til þess að auka getu sína í lifandi starfsumhverfi með góðum samstarfsfélögum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Gerð og yfirferð ársreikninga
  • Framkvæmd rekstraruppgjöra
  • Gerð kostnaðar- og innheimtuáætlana fyrir viðskiptavini Eignaumsjónar
  • Greiningar á fjármálum, rekstrarkostnaði og öðrum tölulegum gögnum
  • Samskipti við viðskiptavini Eignaumsjónar varðandi bókhald, reikninga, kostnaðarskiptingu, innheimtu og áætlanir
  • Samskipti við þjónustuaðila fyrir hönd viðskiptavina Eignaumsjónar
  • Önnur fjölbreytt dagleg störf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði fjármála-/viðskiptafræði eða sambærileg menntun
  • Marktæk starfsreynsla af sambærilegum störfum
  • Góð Excel kunnátta
  • Góð bókhaldsþekking
  • Greiningarhæfni og nákvæm vinnubrögð
  • Metnaður og vilji til að takast á við krefjandi og fjölbreytt störf
  • Áhersla lögð á drifkraft, frumkvæði, fagmennsku og nákvæm vinnubrögð
  • Viðkomandi þarf einnig að vera lipur í mannlegum samskiptum og geta unnið sjálfstætt, sem og í hópi
Fríðindi í starfi
  • Mötuneyti
  • Íþróttastyrkur
  • Fræðslustyrkur
  • Öflugt félagslíf á skemmtilegum vinnustað
Auglýsing birt10. október 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfstemmingPathCreated with Sketch.ÁrsreikningarPathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Uppgjör
Starfsgreinar
Starfsmerkingar