

Sérfræðingur á fjármálasviði
Viltu gegna lykilhlutverki í að styðja við stjórnendur, móta fjárhagslega afkomu og hafa áhrif á starfsemi COWI þvert á landamæri?
Fjármáladeild COWI á Íslandi leitar að viðbót í teymið en í deildinni starfa 8 einstaklingar sem vinna að umfangsmiklum og fjölbreyttum verkefnum tengdum rekstri COWI. Í þessu hlutverki munt þú m.a. styðja við fjármálastjóra (Head of Finance Iceland) með stefnumótandi greiningum og öðrum fjárhagsgögnum, halda utan um mánaðarleg uppgjör og spár, og hafa yfirlit með kostnaðarstýringu. Í starfinu verða tækifæri til að þróa og þroska bæði innsýn og skýrslugerð á okkar rekstri í nánu samstarfi við fjármáladeild COWI á Íslandi sem og fjármálateymi COWI utan Íslands. Starfið felur því í sér samskipti við sérfræðinga úti um allan heim og bíður upp á áhugaverða starfsþróunarmöguleika í alþjóðlegu umhverfi.
- Fjárhagslegar greiningar
- Fjárhagsáætlanir
- Mánaðaruppgjör
- Veita stjórnendum ráðgjöf um frammistöðu, lykilárangursvísa (KPI), áhættu og fleira.
Færni þín er lykillinn að velgengni okkar. Við vinnum þvert á landamæri og fræðigreinar og deilum þekkingu og byggjum upp sterk tengsl við samstarfsmenn og viðskiptavini. Þú leggur til sérfræðiþekkingu þína og færð að læra af þeim bestu. Til að ná árangri í þessari stöðu teljum við að þú ættir að vera þjónustusinnaður, sveigjanlegur einstaklingur sem er frábær í að byggja upp sambönd, gaum að smáatriðum og alltaf opinn fyrir nýjum áskorunum.
Að auki erum við að leitast eftir:
- Háskólagráða í fjármálum, bókhaldi, hagfræði eða skyldum greinum (meistaragráða er kostur).
- Lágmark 5 ára viðeigandi reynsla á sviði fjármálastjórnunar (Finance Business Partnering) eða forystuhlutverkum.
- Sterkri hæfni að vinna með fjárhagsleg gögn og framsetningu þeirra.
- Framúrskarandi greiningarhæfni, viðskiptavit og hugrekki til að hafa áhrif á ákvarðanatöku.
- Samskiptahæfileikum og hæfni til að vinna í hóp.
- Sjálfstæðum vinnubrögðum og frumkvæði í starfi.
- Góð kunnátta á íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
Við bjóðum líka uppá
-
Sveigjanlegan vinnutíma og fjarvinnumöguleika í bland við vinnu á starfsstöð
-
Öflugt mötuneyti með morgunmat, hádegismat og síðdegishressingu
-
Samgöngu- og líkamsræktarstyrkir
-
Starfsmannafélag með fjölbreyttum deildum og viðburðum
-
Viðbótargreiðslur í fæðingarorlofi
-
Starfsþróunarmöguleikar innan COWI, starfsþróunaráætlanir og rafræn þjálfun hjá COWI Academy
-
Árlegt heilsufarsmat













