Eik fasteignafélag hf.
Eik fasteignafélag hf.
Eik fasteignafélag hf.

Framsækinn sérfræðingur í viðskiptum og þjónustu

Eik fasteignafélag leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi til að taka þátt í uppbyggingu nýs sviðs innan félagsins. Starfið er fjölbreytt og gefur einstakt tækifæri til að hafa áhrif á framtíð félagsins með nýsköpun, framúrskarandi þjónustu og þróun viðskipta.

Nýja sviðið ber heitið Viðskiptavinir og sameinar þrjú öflug teymi – útleigu, viðskiptaþróun og húsumhyggju. Sameiginlegt markmið þeirra er að sækja nýja viðskiptavini, styrkja tengsl við núverandi viðskiptavini og tryggja þeim framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sem hluti af teyminu gætir þú meðal annars komið að:

  • Þjónustu við núverandi og verðandi viðskiptavini og aðstoð við að finna hentugar húsnæðislausnir.
  • Sýningum á eignum og faglegri ráðgjöf.
  • Þarfagreiningu og þróun sérsniðinna lausna fyrir viðskiptavini.
  • Leit og greiningu á nýjum viðskiptatækifærum.
  • Samningsgerð og vinnslu skjala tengdum leigusamningum.
  • Þróun nýrra tekjustoða og verkefna.
  • Fjölbreyttum verkefnum á sviði viðskiptaþróunar og/eða greiningarvinnu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Leiðtogahæfileikar og hæfni til að hvetja aðra til árangurs.
  • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Framúrskarandi samskiptafærni, jákvætt hugarfar og þjónustulund.
  • Geta til að vinna undir álagi og leysa mörg verkefni í einu.
  • Góð tölvukunnátta, sérstaklega í Excel og Word.
Auglýsing birt11. október 2025
Umsóknarfrestur26. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Microsoft WordPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar