Jarðboranir
Jarðboranir

Sérfræðingur á fjármálasviði

Hefur þú brennandi áhuga og þekkingu á fjármálum?

Jarðboranir leita að jákvæðum og drífandi aðila til að vinna að uppgjörsmálum og öðrum tengdum verkefnum. Jarðboranir eru alþjóðlegt fyrirtæki með erlend og innlend félög innan sinnar samstæðu. Félagið er í meirihlutaeigu norska félagsins Archer, sem skráð er í norsku kauphöllinni. Skrifstofa Jarðborana er í Dalshrauni í Hafnarfirði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mánaðar- og ársuppgjör samstæðunnar
  • Skil á uppgjörum og öðrum upplýsingum til erlends móðurfélags
  • Greiningarvinna og upplýsingaöflun við tilboðsgerð
  • Leiðandi í innleiðingu reglna um sjáfbærniupplýsingar í ársreikningi
  • Utanumhald um viðskipti við tengda aðila (e. transfer pricing rules)
  • Þátttaka í umbótaverkefnum innan fjármáladeildar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af bókhalds- og uppgjörsvinnu er skilyrði
  • Þekking á alþjóðlegum reikningsskilum og lögum um ársreikninga
  • Frumkvæði í starfi og umbótahugsun
  • Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Jákvæðni og rík þjónustulund
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
  • Hádegismatur
  • Heilsustyrkur
  • Sveigjanlegur vinnutími
Auglýsing birt15. október 2024
Umsóknarfrestur30. október 2024
Tungumálahæfni
EnskaEnskaMjög góð
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Dalshraun 1, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁrsreikningarPathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.ReikningagerðPathCreated with Sketch.UppgjörPathCreated with Sketch.ViðskiptafræðingurPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar