Suðurverk
Suðurverk

Starfsmaður á skrifstofu

Suðurverk hf. óskar eftir að ráða drífandi og metnaðarfullan starfskraft í skrifstofustarf. Í boði er fjölbreytt starf hjá öflugu fyrirtæki.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hefðbundin bókhaldsstörf, s.s. fjárhagsbókhald og reikningagerð
  • Innheimta, afstemmingar og skil á gögnum til endurskoðanda
  • Launavinnsla
  • Önnur tilfallandi skrifstofustörf

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Haldgóð þekking og reynsla af bókhaldi
  • Þjónustulund ásamt góðri samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð vinnubrögð
  • Mjög góð almenn tölvukunnátta, þekking á Microsoft dynamic NAV kostur
  • Gott vald á íslensku og ensku

Suðurverk er meðal öflugustu verktakafyrirtækja Íslands og býr fyrirtækið yfir miklum og öflugum tækjakosti, reynslumiklu starfsfólki og mikilli fagþekkingu.

Umsóknarfrestur er til og með 28. október 2024. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Lea Kristín Guðmundsdóttir (leakristin@intellecta.is) í síma 511 1225.

Auglýsing birt14. október 2024
Umsóknarfrestur28. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfstemmingPathCreated with Sketch.LaunavinnslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskipti
Starfsgreinar
Starfsmerkingar