Háskóli Íslands
Háskóli Íslands
Háskóli Íslands

Ritstjóri kennsluskrár

Laust er til umsóknar fullt starf ritstjóra kennsluskrár Háskóla Íslands. Útgáfa kennsluskrár heyrir undir kennslusvið Háskóla Íslands. Ritstjóri er starfsmaður kennslusviðs og stýrir reglulegri vinnu við kennsluskrá Háskóla Íslands, sem gefin er árlega út á vef Háskóla Íslands, í samráði við ritnefnd. Í því felst m.a. að skipuleggja innihald kennsluskrár og framsetningu efnis, leiðbeina starfsfólki sem kemur að gerð kennsluskrár og virkja fólk til samvinnu. Ritstjóri undirbýr breytingar á reglum sem varða nám og kennslu, hefur umsjón með birtingu reglna í Stjórnartíðindum og á vef HÍ. Í starfinu felst einnig þátttaka í verkefnum er varða stefnu- og gæðamál í námi og kennslu við Háskóla Íslands.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ritstjóri ber faglega ábyrgð á gæðum kennsluskrár og tryggir að vandað sé til verka við gerð og útgáfu kennsluskrár.
  • Ritstjóri vinnur að þróun kennsluskrár og innleiðingu breytinga og nýjunga í samráði við ritnefnd og stjórnendur fræðasviða.
  • Ritstjóri hefur umsjón með samþykktarferli nýrra námsleiða og veitir fræðasviðum og deildum ýmsar leiðbeiningar og aðstoð í því sambandi.
  • Ritstjóri veitir fræðasviðum og deildum aðstoð og ráðgjöf i tengslum við breytingar á reglum Háskóla Íslands er varða nám og kennslu.
  • Í samvinnu við skrifstofu rektors annast ritstjóri yfirferð og uppsetningu á regluskjölum sem send eru til birtingar í Stjórnartíðindum, svo og birtingu reglna á vef háskólans.
  • Ritstjóri hefur umsjón með upplýsingasíðum kennslusviðs sem varða nám og próf, á innri og ytri vef.

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf sem nýtist í starfi, viðbótarmenntun er kostur.
  • Haldbær þekking á skipulagi menntunar á háskólastigi er kostur.
  • Reynsla af framsetningu efnis á vefmiðlum.
  • Reynsla af verkefnastjórnun er æskileg.
  • Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði.
  • Frumkvæði, sjálfstæði, skipulagshæfni og nákvæmni í starfi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Góð íslenskukunnátta, bæði í ræðu og riti.
  • Góð enskukunnátta, reynsla af þýðingum milli íslensku og ensku er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá
  • Bréf þar sem áhuga á starfinu er lýst og fjallað um hvað umsækjandi telur sig geta lagt af mörkum til þess
  • Staðfest afrit af prófskírteinum
  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans, sjá hér.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 21.02.2025

Nánari upplýsingar veitir

Kristinn Andersen - [email protected] - 5254688

Auglýsing birt14. febrúar 2025
Umsóknarfrestur21. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sæmundargata 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar