![VHE](https://alfredprod.imgix.net/logo/6fae99cf-b0e1-4852-9810-fb8729724bee.png?w=256&q=75&auto=format)
![VHE](https://alfredprod.imgix.net/cover/9a7dfabe-de28-4d0c-ad6d-1615a168a8b7.jpeg?w=1200&q=75&auto=format)
Rafmagnshönnuður - Verkfræðideild
Við hjá VHE óskum eftir að ráða metnaðarfullan rafmagnshönnuð til að sinna fjölbreyttum störfum innan verkfræðideildarinnar. Starfsmaðurinn þarf að geta unnið sjálfstætt, vera lausnarmiðaður og hafa ríka þjónustulund.
Um er að ræða fullt starf á skemmtilegum vinnustað við fjölskylduvænar aðstæður þar sem mikill stígandi hefur verið í vexti og þróun fyrirtækisins.
Verkfræðideild VHE hefur náð að skapa sér góðan og stöðugan sess á sviði hug- og vélbúnaðarþróunar í iðngeiranum og býður uppá starfsvettvang þar sem sjálfstæði starfsmanna, drifkraftur og frumlegar lausnir fá að njóta sín.
· Rafmagnshönnun vélbúnaðar
· Koma að forritun og uppsetningu á iðnstýringum og raflögnum
· Verkefnastýra verkefnum og uppsetningu hjá viðskiptavinum
· Aðstoða rafvirkja við framleiðslu á nýjum vélbúnaði
· Koma að bilanagreiningu og prófunum á nýjum og eldri búnaði hjá viðskiptavinum
· Taka þátt í gerð sölutilboða og að sækja ný verkefni til viðskiptavina
· Rafiðnfræði, tæknifræði, verkfræði eða sambærileg menntun
· Þekking og reynsla af rafmagnshönnun fyrir vélar og iðnað
· Þekking og reynsla af AutoCad Electrical
· Þekking og reynsla af verkefnastjórnun
· Þekking og reynsla af sölumennsku og gerð sölutilboða er kostur
· Þekking og reynsla af forritun og uppsetningu á iðnstýringum og raflögnum
· Reynsla af rafhönnun bygginga og teikniréttindi á lágspennustigi er kostur
· íslenska eða góð enskukunnátta skilyrði
Fræðslu- og heilsustyrkir
Mötuneyti
![Blámi](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-2d2d717e-d45d-4a99-b366-5570a67e5990.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
![Reykjavik Geothermal](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-d994fc05-9011-4cf8-b14b-eddc6ee32f75.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
![Reykjavik Geothermal](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-d994fc05-9011-4cf8-b14b-eddc6ee32f75.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
![FSRE](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-7b3f2be3-ef13-4c60-95f8-f9f1839f2eec.png?w=256&q=75&auto=format)
![Íslandsturnar hf](https://alfredprod.imgix.net/logo/e68aa8ae-7521-46cc-875e-3d55373299e2.png?w=256&q=75&auto=format)
![FSRE](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-7b3f2be3-ef13-4c60-95f8-f9f1839f2eec.png?w=256&q=75&auto=format)
![VHE](https://alfredprod.imgix.net/logo/6fae99cf-b0e1-4852-9810-fb8729724bee.png?w=256&q=75&auto=format)
![Umhverfis-og framkvæmdasvið](https://alfredprod.imgix.net/logo/9594b174-f850-4608-a3f6-53835718ec40.png?w=256&q=75&auto=format)
![Borealis Data Center](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-11d29f18-f475-48f9-b6f9-1b54cc6c8338.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
![RARIK ohf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/56548437-1652-4453-b008-754e7330a981.png?w=256&q=75&auto=format)
![Alcoa Fjarðaál](https://alfredprod.imgix.net/logo/cc609132-0f7e-43b4-8fd9-1726afdf3333.png?w=256&q=75&auto=format)
![Langisjór | Samstæða](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-4a26fb2b-2e74-4e13-a967-9192cb7d7950.jpeg?w=256&q=75&auto=format)