![Reykjavik Geothermal](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-d994fc05-9011-4cf8-b14b-eddc6ee32f75.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
Reykjavik Geothermal
Reykjavik Geothermal er þróunar-, fjárfestinga- og ráðgjafafyrirtæki á sviði jarðhita á alþjóðavettvangi. Frá stofnun árið 2008 hefur félagið unnið að jarðhitaverkefnum í yfir 40 þjóðlöndum, og í dag er fyrirtækið meðal annars að þróa eigin verkefni á Kanaríeyjum, í Bandaríkjunum, í Mið-Austurlöndum og í Afríku auk Íslands.
Fyrirtækið er hugsjónadrifið, leggur áherslu á sjálfbæra nýtingu grænna orkuauðlinda í sátt og samlyndi við umhverfið og samfélagið, og vinnur samkvæmt heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna í öllum sínum verkefnum.
Verkfræðingur á sviði jarðhitaþróunar
Reykjavik Geothermal leitar að drífandi og öflugum verkfræðingi til starfa í þróunar- og ráðgjafaverkefnum fyrirtækisins. Um er að ræða fjölbreytt starf sem felur m.a. í sér vinnu við verkefnastjórnun, áætlunargerð, ráðgjöf á sviði jarðhitaþróunar auk samskipta við erlenda samstarfsaðila.
Við leitum að aðila með brennandi áhuga á grænni orku og þeim tækifærum sem í henni felast. Í starfinu reynir m.a. á sjálfstæð vinnubrögð og lipurð í samskiptum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkfræði- og tæknivinna, verkefnastjórnun, ráðgjöf og áætlanagerð í fjölbreyttum verkefnum tengdum þróun jarðhitaverkefna á alþjóðavettvangi.
- Aðkoma að viðskiptaþróun og þátttaka í vali á mögulegum verkefnum út frá gæðum jarðhitaauðlinda, markaðsumhverfi, umhverfis-, samfélags- og leyfismálum og öðrum aðstæðum.
- Þátttaka í samningagerð, t.d. á sviði orkusölusamninga og verkefnaútboða.
- Fjölbreytt ráðgjöf á sviði jarðhitaþróunar á Íslandi og erlendis.
- Samskipti við yfirvöld, samstarfsaðila og fjárfesta hérlendis og erlendis.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Verkfræðimenntun, framhaldsmenntun í verkfræði eða á sviði stjórnunar, viðskiptafræði eða fjármála er kostur.
- Reynsla sem nýtist í starfi, t.a.m á sviði orkumála, jarðhitaþróunar, áætlanagerðar, hitaveitu, kælingar með „absorption“ tækni er kostur.
- Brennandi áhugi á grænni orku.
- Gott vald á ensku í ræðu og riti.
- Önnur tungumálakunnátta er kostur.
Auglýsing stofnuð2. júlí 2024
Umsóknarfrestur11. júlí 2024
Tungumálahæfni
![Enska](https://alfredflags.imgix.net/en.png?w=60&h=60)
Staðsetning
Skólavörðustígur 11, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)
![Arion banki](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-6ac25c0a-c1cc-48db-ab3b-71685b9fd874.png?w=256&q=75&auto=format)
Viðskiptastjóri fyrirtækjatrygginga
Arion banki
![VHE](https://alfredprod.imgix.net/logo/6fae99cf-b0e1-4852-9810-fb8729724bee.png?w=256&q=75&auto=format)
Vélahönnuður - Verkfræðideild
VHE
![VHE](https://alfredprod.imgix.net/logo/6fae99cf-b0e1-4852-9810-fb8729724bee.png?w=256&q=75&auto=format)
Rafmagnshönnuður - Verkfræðideild
VHE
![FSRE](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-7b3f2be3-ef13-4c60-95f8-f9f1839f2eec.png?w=256&q=75&auto=format)
Verkefnastjóri framkvæmda
FSRE
![Rapyd Europe hf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/6de9d4e9-bb92-4540-bb49-cdda0d88d450.png?w=256&q=75&auto=format)
Sérfræðingur í launavinnslu
Rapyd Europe hf.
![Terra hf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-8b52294a-d6e0-4445-97d3-5c69a58ecc22.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
Sérfræðingur í útflutningsdeild
Terra hf.
![Eignaumsjón hf](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-24f7b335-55c2-4cf1-8860-dc9ce028e13c.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
Öflugur bókari
Eignaumsjón hf
![Landspítali](https://alfredprod.imgix.net/logo/cdc858ae-ca68-46ef-8c0d-8c8c1d343dc8.png?w=256&q=75&auto=format)
Verkefnastjóri vaktakerfis og vinnustundar
Landspítali
![Mímir-símenntun](https://alfredprod.imgix.net/logo/d2bfafb2-386e-4369-a93e-8ca60c800fc0.png?w=256&q=75&auto=format)
Verkefnastjóri í fræðslu og þróun
Mímir-símenntun
![Sveitarfélagið Hornafjörður](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-f6740fa2-7462-4c8f-9dae-781678b6f714.png?w=256&q=75&auto=format)
Verkefnastjóri umhverfis- og skipulagsmála
Sveitarfélagið Hornafjörður
![Sveitarfélagið Hornafjörður](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-f6740fa2-7462-4c8f-9dae-781678b6f714.png?w=256&q=75&auto=format)
Verkefnastjóri mannvirkjasviðs
Sveitarfélagið Hornafjörður
![Uppgjör og reikningsskil ehf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-b8a1b239-3202-474a-abea-1661562d8b0a.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
Bókari og uppgjörsaðili
Uppgjör og reikningsskil ehf.