![Blámi](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-2d2d717e-d45d-4a99-b366-5570a67e5990.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
Blámi
Blámi er samstarfsverkefni Landsvirkjunar, Orkubús Vestfjarða, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og Vestfjarðastofu.
Meginmarkmið Bláma er að styðja við og efla nýsköpun og þróun orkuskiptaverkefna með því að auka hlut vistvæns eldsneytis, vetnis og rafeldsneytis í samgöngum og iðnaði. Blámi vill ýta undir orku- og loftslagstengda nýsköpun, efla frumkvöðla og styrkja nýsköpunarumhverfið á Vestfjörðum.
Bláma er ætlað að leiða saman einstaklinga og fyrirtæki sem geta unnið saman við það að afla alþjóðlegs fjármagns til tilrauna, rannsókna og þróunar á orku- og loftslagsvænum lausnum. Með því að auka samstarf á milli fyrirtækja og opinberra aðila er hægt að styðja verkefni og tækifæri, þar sem verðmætasköpun og samkeppnishæfni er aukin.
Blámi mun nýta svæðisbundna styrkleika, mannauð og fyrirtæki til að mynda frjóan jarðveg fyrir nýsköpun og aukna verðmætasköpun.
![Blámi](https://alfredprod.imgix.net/adcover/is-e4e86403-e247-4b5c-b574-18b47f64b285.jpeg?w=1200&q=75&auto=format)
Verkefnastjóri á sunnanverðum Vestfjörðum
Blámi óskar eftir að ráða verkefnastjóra á sunnanverða Vestfirði. Leitað er að öflugum einstaklingi til að halda utan um valin verkefni Bláma, sérstaklega á sunnanverðum Vestfjörðum. Verkefnastjóri vinnur þétt með framkvæmdastjóra Bláma og ber ábyrgð á framgangi verkefna í samræmi við áætlun, framkvæmdastjórn og stjórn. Starfsstöð verkefnastjóra er á Patreksfirði.
Blámi er í eigu Umhverfis -, Orku og Loftlagsráðuneytisins, Landsvirkjunar, Orkubús Vestfjaða og Vestfjarðastofu. Hlutverk Bláma er að styðja við verðmætasköpun á Vestfjörðum á grunni orkuskipta og nýtingu á vistænum orkugjöfum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkefnastjórn valinna verkefna Bláma með áherslu á orkunýtingu, orkuskipti og verðmætasköpun
- Þróa öflugt samstarf við hagsmunaaðila á sunnanverðum Vestfjörðum
- Aðstoð við að koma verkefnum Bláma á framfæri
- Mótun og fjármögnun nýrra verkefna á starfssvæði Bláma
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi (t.d. verkfræði, tæknifræði, viðskiptafræði o.fl.)
- Starfsreynsla sem nýtist í starfi
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
- Reynsla af gerð styrkumsókna í innlenda og erlenda sjóði er kostur
- Reynsla af verkefnastjórn kostur
Auglýsing stofnuð2. júlí 2024
Umsóknarfrestur6. ágúst 2024
Staðsetning
Við Patrekshöfn 140238, 450 Patreksfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
![Arion banki](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-6ac25c0a-c1cc-48db-ab3b-71685b9fd874.png?w=256&q=75&auto=format)
Viðskiptastjóri fyrirtækjatrygginga
Arion banki
![VHE](https://alfredprod.imgix.net/logo/6fae99cf-b0e1-4852-9810-fb8729724bee.png?w=256&q=75&auto=format)
Vélahönnuður - Verkfræðideild
VHE
![VHE](https://alfredprod.imgix.net/logo/6fae99cf-b0e1-4852-9810-fb8729724bee.png?w=256&q=75&auto=format)
Rafmagnshönnuður - Verkfræðideild
VHE
![FSRE](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-7b3f2be3-ef13-4c60-95f8-f9f1839f2eec.png?w=256&q=75&auto=format)
Verkefnastjóri framkvæmda
FSRE
![Rapyd Europe hf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/6de9d4e9-bb92-4540-bb49-cdda0d88d450.png?w=256&q=75&auto=format)
Sérfræðingur í launavinnslu
Rapyd Europe hf.
![Terra hf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-8b52294a-d6e0-4445-97d3-5c69a58ecc22.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
Sérfræðingur í útflutningsdeild
Terra hf.
![Eignaumsjón hf](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-24f7b335-55c2-4cf1-8860-dc9ce028e13c.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
Öflugur bókari
Eignaumsjón hf
![Landspítali](https://alfredprod.imgix.net/logo/cdc858ae-ca68-46ef-8c0d-8c8c1d343dc8.png?w=256&q=75&auto=format)
Verkefnastjóri vaktakerfis og vinnustundar
Landspítali
![Mímir-símenntun](https://alfredprod.imgix.net/logo/d2bfafb2-386e-4369-a93e-8ca60c800fc0.png?w=256&q=75&auto=format)
Verkefnastjóri í fræðslu og þróun
Mímir-símenntun
![Sveitarfélagið Hornafjörður](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-f6740fa2-7462-4c8f-9dae-781678b6f714.png?w=256&q=75&auto=format)
Verkefnastjóri umhverfis- og skipulagsmála
Sveitarfélagið Hornafjörður
![Sveitarfélagið Hornafjörður](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-f6740fa2-7462-4c8f-9dae-781678b6f714.png?w=256&q=75&auto=format)
Verkefnastjóri mannvirkjasviðs
Sveitarfélagið Hornafjörður
![Uppgjör og reikningsskil ehf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-b8a1b239-3202-474a-abea-1661562d8b0a.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
Bókari og uppgjörsaðili
Uppgjör og reikningsskil ehf.