Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Píanókennari Tónlistarskóli Fáskrúðsfjarðar, Stöðvarfjarðar

Við Tónlistarskóla Fáskrúðsfjarðar, Stöðvarfjarðar og Breiðdals vantar píanókennara til starfa í fullt starf. Ráðið er í störfin frá 1. ágúst 2024. Helstu kennslugreinar eru píanó, gítar og rafbassi en aðrar kennslugreinar koma líka til greina og fer eftir hæfni, vilja og getu viðkomandi kennara.

Í Tónlistarskóla Fáskrúðsfjarðar, Stöðvarfjarðar og Breiðdals eru tæplega 100 nemendur og eru flestir á grunnskólaaldri. Kennsla fer fram á skólatíma grunnskóla að mestu leyti og eru tónlistarkennslustofur í sama húsnæði og grunnskólarnir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla nemenda í samræmi við þarfir þeirra og samkvæmt aðalnámskrá og skólanámskrá.
  • Undirbúningur nemenda fyrir próf, tónleika, tónfundi, sýningar og aðra tónlistarviðburði.
  • Skipulag og utanumhald á kennslu eigin nemenda.
  • Samskipti við forráðamenn og samstarfsfólk.
  • Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd tónleika og annarra tónlistarviðburða.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Tónlistarkennaramenntun eða haldgóð tónlistarmenntun sem nýtist í starfi
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Hreint sakavottorð
Auglýsing stofnuð8. maí 2024
Umsóknarfrestur15. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar