Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Leikskólakennari við leikskólann Lyngholt

Lyngholt er 94 nemenda skóli sem skiptist á 6 deildar. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Skólinn er staðsettur í nýlegu húsnæði við Heiðarveg. Grunnskóli Reyðarfjarðar er í næsta nágrenni við skólann og á milli stofnana er mikið og gott samstarf. Lyngholt vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar og ART ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra/skólastjórnendur.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Starfsmenn fá greiðslur fyrir að matast með börnum.
  • Vinnutímastytting, er hægt að taka út vikulega, mánaðarlega eða safna í lengri frí.
  • Sex skipulagsdagar eru á ári.
Auglýsing stofnuð8. maí 2024
Umsóknarfrestur31. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Heiðarvegur 5, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar