Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Umsjónakennari við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar óskar eftir að ráða umsjónakennara við skólann. Við leitum að kennurum með starfshæfni á yngsta stigi, miðstigi og elstastigi. Reynsla af kennslu á viðkomandi stigum er æskileg.

Í skólanum er rúmlega 100 börn í 1.-10. bekk. Kennt er í anda Byrjendalæsis og áhersla á fjölbreytta kennsluhætti. Leitað er að kennurum sem eru reiðubúnir til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.

Fáskrúðsfjörður er einn af byggðarkjörnum Fjarðabyggðar. Það er góður leik- og Grunnskóli og ríkir gott samstarf þar á milli. Í Fjarðabyggð er öflugt íþrótta- og tómstundastarf og ókeypis samgöngur innan Fjarðabyggðar. Stutt er í ósnorta náttúru sem og fjölbreytta afþeyingamöguleika. Á Fáskrúðsfirði er eina inni sundlaug Fjarðabyggðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
  • Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskólanna með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Starfar með öðrum kennurum og sérfræðingum skólans og veitir upplýsingar um námsgengi einstakra nemenda.
  • Að hafa hagsmuni nemenda að leiðarljósi og sýna hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg
  • Góð tök á íslensku máli, rituðu og skrifuðu
  • Samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi
  • Skipulagshæfileikar
  • Reiðubúin/n að takast á við nýjungar
Auglýsing stofnuð8. maí 2024
Umsóknarfrestur20. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Hlíðargata 56, 750 Fáskrúðsfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar