Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

List- og verkgreinakennari við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar óskar eftir að ráða list- og verkgreinakennara. Leitað að kennurum með starfshæfni í smíðum, myndmennt, textílmennt, heimilisfræði og jafnvel tæknilegó.

Í skólanum eru rúmlega 100 börn í 1.-10. bekk. Kennt er í anda Byrjendalæsis og áhersla lögð lögð á fjölbreytta kennsluhætti sem samkvæmt aðferðum leiðsangarnáms. Leitað er að kennurum sem eru reiðubúnir til að ganga til leiðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.

Fáskrúðsfjörður er einn af byggðarkjörnum Fjarðabyggðar. Þar er góður leik- og Grunnskóli, sem mikið samstarf er á milli. Í Fjarðabyggð er öflugt íþrótta- og tómstudnastarf og ókeypis samgöngur innan fjarðabyggðar. Stutt er í ósnotna náttúru sem og fjölbreytta afþreyingamöguleika. Á Fáskrúðsfirði er eina inni sundlaug Fjarðabyggðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins
  • Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá Grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Starfar með öðrum kennurum og sérfræðingum skólans og veitir upplýsingar um námsgengi einstakra nemenda
  • Af hafa hagsmuni nemenda að leiðarljósi og sýna hverjum og einum virðinu, áhuga og umhyggju
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg
  • Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu
  • Samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi
  • Skipulagshæfileikar
  • Reiðubúin/n að takast á við nýjungar
Auglýsing stofnuð8. maí 2024
Umsóknarfrestur20. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Hlíðargata 56, 750 Fáskrúðsfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar