Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Stuðningsfulltrúi við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa við skólann. Við leitum að stuðningsfulltrúum með starfshæfni á yngsta stigi, miðstigi og elstastigi. Reynsla af vinnu með börnum er æskileg.

Í skólanum er rúmlega 100 börn í 1.-10.bekk. Kennt er í anda Byrjendalæsis og áhersla á fjölbreytta kennsluhætti. Leitað er að stuðningsfulltrúum sem eru reiðubúnir til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.

Fáskrúðsfjörður er einn af byggðarkjörnum Fjarðabyggðar. Það er góður leik- og Grunnskóli og ríkir gott samstarf þar á milli. Í Fjarðabyggð er öflugt íþrótta- og tómstundastarf og ókeypis samgöngur innan Fjarðabyggðar. Stutt er í ósnorta náttúru sem og fjölbreytta afþreyingamöguleika. Á Fáskrúðsfirði er eina inni sundlaug Fjarðabyggðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoðar nemendur og reynir að ýta undir færni og sjálfstæði þeirra.
  • Vinnur eftir áætlun sem útbúin hefur verið í samráði kennara, deildarstjóra sérkennslu og annarra ráðgjafa.
  • Gæsla nemenda í forföllum kennara.
  • Situr fag-, teymis- og foreldrafundi eftir því sem við á.
  • Þátttaka í starfi grunnskóla í samráði og að óskum skólastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Ábyrgð í starfi og stundvís
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Samskipta- og samstarfshæfni
  • Skipulagshæfileikar
Auglýsing stofnuð8. maí 2024
Umsóknarfrestur22. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Hlíðargötu 56 |
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar