

Listmeðferðarfræðingur - Fjölbreytt starf á barna- og unglingageðdeild
Við leitum að liðsmanni í samhent teymi listmeðferðarfræðinga á barna- og unglingageðdeild Landspítala (BUGL). Í boði er fjölbreytt starf og tækifæri til að öðlast víðtæka þekkingu innan fagsins með margvíslegum möguleikum á starfsþróun.
Um er að ræða 50-100% starf. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Á barna- og unglingageðdeild er tekið á móti börnum upp að 18 ára aldri sem eiga við geðheilsuvanda að stríða. Þar er veitt sérhæfð þverfagleg þjónusta sem miðar að þörfum barna og fjölskyldna þeirra. Góð samvinna er við fagaðila í nærumhverfi.
Listmeðferðarfræðingur starfar samkvæmt starfslýsingu en meginhlutverk er að meta þörf á og veita listmeðferð, ráðgjöf og meðferð til barns/unglings, foreldra og annarra fagaðila sem tengjast málinu. Listmeðferðarfræðingur vinnur í þverfaglegum teymum og sinnir tenglahlutverki.
Listmeðferðarfræðingar eru mikilvægir fagaðilar í öllu meðferðarstarfi á barna-og unglingageðdeild Landspítala. Lögð er rík áhersla á að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og veitt er góð aðlögun.




























































