

Spennandi starf fyrir iðjuþjálfa - Geðheilsuteymi HH austur
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir iðjuþjálfa við Geðheilsuteymi HH austur. Um er að ræða 100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september nk. eða eftir nánara samkomulagi
Starf iðjuþálfa við geðheilsuteymið felur í sér þróunarstarf sem annars vegar felst í málastjórn og umsjón ákveðinna fjölda skjólstæðinga. Hins vegar þétt samstarf við notendafulltrúa teymisins þar sem unnið er að því að auka virkni, efla þátttöku í samfélaginu, auka sjálfstæði og lífsgæði.
Við Geðheilsuteymi HH austur sem er til húsa að Stórhöfða 23 starfar þverfaglegur starfsmannahópur, hjúkrunarfræðingar, geðlæknar, sálfræðingar, þroskaþjálfi, geðsjúkraliði, notendafulltrúi, félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingar og skrifstofustjóri. Teymið vinnur eftir batahugmyndafræði þar sem einstaklingsmiðuð þjónusta ýtir undir styrkleika og bjargráð notenda.
Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á að vinna í fjölbreyttu vinnuumhverfi þar sem góður starfsandi ríkir. Rík áhersla er lögð á þverfaglega vinnu og stuðning við alla fagaðila teymisins
Nánari upplýsingar má finna inni á (www.heilsugaeslan.is).
- Skipuleggur einstaklingsmiðaða iðjuþjálfun
- Samþætta meðferð og leita leiða til að bæta líðan skjólstæðinga
- Meta færni skjólstæðings við athafnir daglegs lífs
- Nýta iðjutengda nálgun til að efla færni í daglegu lífi
- Þétt samvinna við notendafulltrúa sem og aðra fagaðila í teyminu
- Sinna ráðgjöf og fræðslu til notenda og aðstandenda
- Viðtöl á starfstöð og/eða heimavitjunum ef þess þarf
- Sinna málastjórn, þ.e.hafa umsjón og yfirsýn yfir meðferð ákveðins notendahóps
- Námskeiðshald og önnur tilfallandi verkefni
- Samstarf við aðra fagaðila innan sem og utan stofnunar
- Sjálfstæði, frumkvæði og lausnarmiðuð nálgun í starfi
- Starfsleyfi frá Landlækni
- Að minnsta kosti 5 ára starfsreynsla af iðjuþjálfun æskileg
- Þekking og reynsla af störfum innan geðheilbrigðiskerfisins er æskileg
- Reynsla af þvegfaglegri teymisvinnu æskileg
- Framúrskarandi samskiptahæfni og sveigjanleiki
- Frumkvæði í starfi og góðir skipulagshæfileikar
- Hæfni og geta til að starfa í þverfaglegu teymi
- Faglegur metnaður, framsýni og ábyrgð í starfi
- Reynsla af námskeiðshaldi og fræðslu er kostur
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur












