

Málastjóri - Geðheilsuteymi HH austur
Ertu metnaðarfullur málastjóri sem brennur fyrir bættri geðheilsu og velferð fólks? Geðheilsuteymi HH austur leitar að öflugum og samhentum liðsfélaga í 100% ótímabundið starf. Hér gefst tækifæri til að hafa áhrif á líf fólks með því að efla virkni, sjálfstæði og lífsgæði skjólstæðinga í nánu samstarfi við samheldið og þverfaglegt teymi.
Við leitum að einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í spennandi og krefjandi verkefnum og getur hafið störf 1. september nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Teymið er staðsett að Stórhöfða 23 og í því starfar fjölbreyttur hópur fagfólks: hjúkrunarfræðingar, geðlæknar, sálfræðingar, þroskaþjálfi, geðsjúkraliði, notendafulltrúi, félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingar og skrifstofustjóri. Lögð er rík áhersla á jákvæðan starfsanda og faglegan stuðning.
Nánari upplýsingar má finna inni á (www.heilsugaeslan.is).
- Sinna málastjórn, þ.e. hafa umsjón og yfirlit yfir meðferð notendahóps
- Vinna í þverfaglegu meðferðarteymi
- Samþætta meðferð og leita leiða til að bæta líðan skjólstæðinga
- Setja fram meðferðaráætlun og sinna endurmati
- Sinna ráðgjöf og fræðslu til notenda og aðstandenda
- Viðtöl á starfsstöð og/eða í heimavitjunum
- Námskeiðahald
- Skipulagning og þátttaka í fjölskyldufundum
- Samstarf við aðra fagaðila innan og utan heilsugæslunnar
- Íslenskt leyfi eða starfsréttindi á félags- eða heilbrigðissviði
- Viðbótarnám eða sérnám, er nýtist í starfi, æskilegt
- Reynsla af vinnu með einstaklinga með geðraskanir æskileg
- Reynsla af teymisvinnu æskileg
- Klínísk reynsla innan geðheilbrigðiskerfisins s.l. 5 ár æskileg
- Framúrskarandi samskiptahæfni, framsýni og metnaður í starfi skilyrði
- Frumkvæði í starfi og góðir skipulagshæfileikar skilyrði
- Hæfni og geta til að starfa í þverfaglegu teymi
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Reynsla af fræðslu- og námskeiðahaldi æskileg
- Hæfni og áhugi á verkefnavinnu skilyrði
- Góð íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta skilyrði
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur













