

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á öldrunarlækningadeild L3 Landakoti
Ertu umbótasinnaður hjúkrunarfræðingur sem vilt prófa þig áfram í stjórnunarhlutverki með öflugri leiðsögn og stuðningi?
Við sækjumst eftir hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á öldrunarhjúkrun, umbótastarfi og þverfaglegu samstarfi. Starfið hentar vel þeim sem vilja vaxa í starfi, þróa faglega sýn og kynnast stjórnunarhlutverki í hlýlegu og vel skipulögðu starfsumhverfi.
Aðstoðardeildarstjóri starfar þétt með deildarstjóra að daglegu skipulagi, þróun verklags og innleiðingu nýjunga sem bæta þjónustu og styðja við öryggi og velferð skjólstæðinga.
Öldrunarlækningadeild L3 er staðsett á Landakoti, í hjarta Reykjavíkur, í fallegu og friðsælu umhverfi. Þar dvelja sjúklingar með gilt færni- og heilsumat sem bíða eftir vistun á hjúkrunarheimili. Áhersla er lögð á nærgætin samskipti, mannúðlega nálgun og jákvætt framlag hvers og eins. Við vinnum saman af heilum hug og fögnum nýjum röddum, sjónarhornum og hugmyndum.
Starfshlutfall er 100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi. Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Bryndísi, deildarstjóra.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.






























































