Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á speglunardeild Hringbraut

Við óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing í okkar góða hóp á speglunardeild við Hringbraut. Starfshlutfall og upphaf starfs er samkomulag. Samhliða almennum hjúkrunarstörfum eru í boði fjölbreytt og sérhæfð verkefni sem einungis eru unnin á speglunareiningu. Starfsemin fer aðallega fram á dagvinnutíma en neyðarþjónusta fer fram á bakvöktum.

Speglunareiningin sinnir bæði almennum speglunum en er einnig sú sérhæfðasta á landinu og sinnir því sjúklingum alls staðar að. Á deildinni starfar um 30 manna hópur samhents starfsfólks, í nánu samstarfi við marga sérfræðinga Landspítala. Starfsstöðvar eru tvær, við Hringbraut þar sem stærri hluti speglana fer fram og í Fossvogi. Deildin er í sókn á mörgum sviðum. Þjónusta við sjúklinga hefur verið bætt og aukin, mikil og góð samvinna er við aðra starfsemi spítalans og hafa svæfingar við flóknari inngrip aukist mikið. Það hefur verið forsenda fyrir því að nýjar tegundir inngripa eru í boði og eru frekari nýjungar og framþróun á stefnuskránni.

Starfsánægja á deildinni er mjög góð og hér skipta góð samskipti og gagnkvæm virðing miklu máli, sem og skýr meðferðarmarkmið og áþreifanlegur árangur. Á deildinni starfar öflugur hópur hjúkrunarfræðinga sem getur miðlað mikilli þekkingu og reynslu. Áhersla er lögð á að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og að veita góða og markvissa aðlögun.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Einstaklingshæfð hjúkrun við undirbúning, fræðslu, framkvæmd og umönnun í og eftir speglanir
  • Vinna við speglunaraðgerðir með sérfræðilækni og með aukinni reynslu og þekkingu hjúkrunarfræðings geta inngripin orðið sérhæfðari og meira tæknilega krefjandi
  • Vöktun sjúklinga á vöknun speglunardeildar eftir slævingu í speglun
  • Lyfjagjafir, slæving, verkjastilling og vöktun sjúklinga á meðan á speglunarinngripum stendur
  • Aðstoð við myndgreiningu í sérhæfðum speglunum, s.s. gegnumlýsingu, ómskoðun í speglun og gjöf skuggaefnis í meltingarveg, gallvegi og brisgang við þræðingar
  • Þátttaka í bakvaktaþjónustu
  • Tækifæri til að taka þátt í eða stýra þróunarverkefnum innan deildarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Faglegur metnaður og frumkvæði
  • Jákvætt viðhorf, góðir samskiptahæfileikar og færni í teymisvinnu
  • Áhugi á að starfa í krefjandi og skemmtilegu umhverfi
  • Íslenskukunnátta
Auglýsing birt4. júlí 2025
Umsóknarfrestur6. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hringbraut 37-41 37R, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (39)
Landspítali
Pediatric Oncologist - Children's Hospital in Iceland
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í krabbameinslækningum barna á Barnapítala Hringsins
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á legudeild lyndisraskana Kleppi
Landspítali
Landspítali
Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á legudeild lyndisraskana Kleppi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á öldrunarlækningadeild L3
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á smitsjúkdómadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarnemi á legudeild lyndisraskana á Kleppi
Landspítali
Landspítali
Verkefnastjóri við opinber innkaup lyfja á Landspítala
Landspítali
Landspítali
Starfsfólk óskast í sjúkrahúsapótek Lyfjaþjónustu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarnemar á 3.-4. ári með áhuga á geð- og fíknisjúkdómum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á heila-, tauga- og öldrunarbæklunarskurðdeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á bráðalegudeild geð- og fíknisjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Viltu vinna sem jafningi á geðgjörgæslu, Hringbraut?
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í heimilislækningum eða lyflækningum með áhuga á innkirtlalækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á útskriftardeild aldraðra
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á Sáramiðstöð - göngudeild skurðlækninga
Landspítali
Landspítali
Almennur læknir á húð- og kynsjúkdómalækningar
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í klínískri ónæmisfræði og/ eða blóðgjafafræði
Landspítali
Landspítali
Medical doctor with specialization in Immunology & Transfusion Medicine at Landspitali, Reykjavik, Iceland
Landspítali
Landspítali
Mannauðsstjóri
Landspítali
Landspítali
Deildarlæknir við Blóðbanka- og ónæmisfræðiþjónustu
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á taugalækningadeild
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfar - Fjölbreytt störf í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Skrifstofumaður/ Teymisstjóri blóðlækninga í móttöku dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali
Landspítali
Sjúkraþjálfari á Landspítala Landakoti
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - dagvinna á göngudeild húð- og kynsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarnemar á 3.- 4. ári - hlutastörf með námi á speglunardeild Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Starf í vöruhúsi Landspítala
Landspítali
Landspítali
Umsókn um launaða starfsþjálfun sjúkraliðanema skv. námskrá haustönn 2025
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Ritara- og skrifstofustörf
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Umönnunarstörf á Landspítala
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Lyfjatæknir
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Læknir með lækningaleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Sjúkraliði með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Ljósmóðir með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Heilbrigðisgagnafræðingur með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Hjúkrunarnemi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Hjúkrunarfræðingur með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Almenn störf á Landspítala
Landspítali