Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur á ferð og flugi um borgina

  • Ert þú atorkumikill hjúkrunarfræðingur í leit að nýjum og ferskum áskorunum?
  • Viltu sinna fjölbreyttum hópi fólks víðsvegar um borgina, þar sem verkefnin spanna allt litróf hjúkrunar?
  • Viltu fá tækifæri til að veita sérhæfða hjúkrunarþjónustu til fólks í borginni og kynnast þeirri fjölbreytni sem starfið býður upp á?
  • Viltu upplifa töfra þess að hjúkra fólki í þeirra eigin umhverfi?
  • Viltu kynnast því hvernig er að starfa við hjúkrun í samþættri heimaþjónustu?
  • Viltu taka þátt í að þróa og innleiða nýjar leiðir til að veita heilbrigðisþjónustu í umhverfi sem tekur sífelldum breytingum?

Ef svarið er JÁ- þá ert þú tilvalinn liðsmaður til að taka þátt í að móta framtíðar heimaþjónustu í breyttu landslagi heilbrigðiskerfisins.

Ef þú vilt hoppa á vagninn- skelltu þá inn umsókn!

Við vekjum athygli á nýgerðum kjarasamningum Reykjavíkurborgar og Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Hjúkrunarfræðingar í heimaþjónustu sinna margvíslegum verkefnum á sviði hjúkrunar, þar sem markmiðið er að fólk og fjölskyldur njóti betri og einstaklingsmiðaðri þjónustu til að styðja við og hámarka heilsu, vellíðan og sjálfstæði.

Reykjavíkurborg er leiðandi í samþættri heimaþjónustu og veitir þjónustu í fremstu röð. Við í Norðurmiðstöð leitum að hjúkrunarfræðingum til að ganga til liðs við okkar frábæra starfsmannahóp. Starfshlutfall og vinnutími er samkomulag.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Góð samskipta og skipulagshæfni
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Ökuréttindi
  • Íslenskukunnátta á bilinu B2-C2 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
  • Þekking og reynsla af sjúkraskrárkerfinu Sögu og RAI mælitækjum æskileg
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur
  • Menningarkort
  • Frítt í sundlaugar Reykjavíkurborgar
  • 36 stunda vinnuvika
  • Mötuneyti
  • Fjölskylduvænt starfsumhverfi
Auglýsing birt7. júlí 2025
Umsóknarfrestur21. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar