
Hrafnista
Hrafnista er stærsta hjúkrunarheimili landsins og alls eru heimilin átta talsins í fimm sveitarfélögum. Þau eru Hrafnista Laugarási, Hraunvangi, Boðaþingi, Ísafold, Skógabæ, Sléttuvegi, Hlévangi og Nesvöllum.
Hjá Hrafnistu starfar öflugur hópur einstaklinga með fjölbreytta menntun, starfsreynslu og með fjölbreyttan bakgrunn.
Ef þú hefur áhuga á að bætast í Hrafnistuhópinn skaltu endilega senda inn umsókn,
Hlökkum til að heyra frá þér.

Hjúkrunardeildarstjóri - Hrafnista Nesvellir
Hrafnista Nesvöllum óskar eftir að ráða hjúkrunardeildarstjóra á nýja 40 íbúa hjúkrunardeild. Framundan eru spennandi tímar á Nesvöllum en í vetur fer heimilið úr einni deild með 60 íbúa í þrjár deildir með samtals 140.Stefnt er á að nýjar deildir verði teknar í notkun undir lok árs og leitum við því að öflugum leiðtoga til taka þátt í þessu krefjandi og jafnframt skemmtilega verkefni með okkur.
Við leitum að jákvæðum, lausnamiðuðum og drífandi leiðtoga sem hefur áhuga á að veita framúrskarandi og faglega þjónustu til handa íbúum heimilisins og aðstandendum þeirra.
Deildarstjóri er hluti af stjórnendahópi Hrafnistu.
Kostur er ef viðkomandi getur hafið störf í haust.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Deildarstjóri er leiðtogi í hjúkrun og þjónustu við íbúa á hjúkrunardeild.
- Dagleg stjórnun og rekstur hjúkrunardeildar
- Skipulag á störfum starfsfólks í samræmi við þarfir þjónustuþega
- Ábyrgð á faglegri hjúkrun og gæðum í þjónustu
- Skipulagning og þróun þjónustu í samvinnu við forstöðumann
- Ráðgjöf, samskipti og fræðsla til íbúa og aðstandenda
- Þverfagleg teymisvinna innan heimilis og þvert á Hrafnistu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Reynsla af stjórnun kostur
- Reynsla af RAI mælitækinu kostur
- Frumkvæði, jákvæðni og faglegur metnaður
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur með strætó
- Stuðningur til framþróunar í formi leyfa á launum og námstyrkja
- Við bjóðum upp á jákvæðan og skemmtilegan starfsanda, áhugaverð verkefni og starf sem er í sífelldri þróun.
Auglýsing birt24. júní 2025
Umsóknarfrestur6. júlí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Njarðarvellir 2, 260 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Við sköpum nýja framtíð í heimaþjónustu Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur á öldrunarlækningadeild L3
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild bæklunarskurðlækninga
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur - Gott að eldast
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

Deildarstjóri iðjuþjálfunar
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili

Hjúkrunarfræðingur á meðferðarsvið 1
Reykjalundur

Hjúkrunarfræðingur í vaktavinnu
Reykjalundur

Sjúkraliði í blóðsýnatöku
Rannsóknasetrið í Mjódd

Hjúkrunarfræðingar - Gjörgæsla Fossvogi
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í meltingarteymi
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar á bráðalegudeild geð- og fíknisjúkdóma
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur Færni-og heilsumatsnefnd HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins