Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili

Deildarstjóri iðjuþjálfunar

Hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfði á Akranesi auglýsir stöðu deildarstjóra iðjuþjálfunar lausa til umsóknar.

Á Höfða eru 75 hjúkrunarrými auk þess sem þar er rekin dagdvöl með 25 rýmum. Í sameiginlegu rými hússins er m.a. eldhús, matsalur, samkomusalur, starfs- og sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og önnur þjónusta. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Höfða www.dvalarheimili.is.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Innleiðing á stefnum, verklagi og vinnubrögðum, ásamt eftirfylgni.
  • Stýring og þátttaka í verkefnum og umbótum innan einingar og þvert á fagsvið.
  • Almenn umsjón og rekstur iðjuþjálfunardeildar.
  • Iðjuþjálfun með það að markmiði að auka lífsgæði þjónustuþega.
  • Endurhæfing, mat og þjálfun þjónustuþega.
  • Umsjón með RAI mati iðjuþjálfunar.
  • Ráðgjöf og fræðsla til starfsfólks, þjónustuþega og aðstandenda.
  • Önnu verkefni sem heyra undir iðjuþjálfun.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Iðjuþjálfi með viðurkennt starfsleyfi.
  • Starfsreynsla af starfssviði iðjuþjálfunar er skilyrði – kostur ef frá hjúkrunarheimili.
  • Reynsla af stjórnun eða verkefnastýringu er kostur.
  • Þekking á RAI mati er kostur.
  • Áhugi/reynsla af vinnu með fólki með færniskerðingu af ýmsum toga.
  • Lögð er áhersla á faglegan metnað, drifkraft og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar. 
Auglýsing birt23. júní 2025
Umsóknarfrestur9. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sólmundarhöfði 5, 300 Akranes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar