Borgarholtsskóli
Borgarholtsskóli

Náms- og starfsráðgjafi við Borgarholtsskóla

Náms- og starfsráðgjafi óskast í 100% starf við Borgarholtsskóla frá og með haustönn 2025.

Leitað er að náms- og starfsráðgjafa sem hefur góða þekkingu á iðn- og starfsnámi.

Hlutverk náms- og starfsráðgjafa er fyrst og fremst að vera málsvari og trúnaðarmaður nemenda innan skólans og standa vörð um velferð þeirra. Þá sér hann einnig um málefni er tengjast stoðþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

· veita upplýsingar og annast ráðgjöf til nemenda í iðn- og starfsnámi um náms- og starfsval 

  • þjónusta nemendur í vinnustaðanámi t.d. hvað varðar rafræna ferilbók 
  • hafa yfirsýn yfir nám og ferilbækur nemenda í starfsnámi 

· starfa í teymi sviðsstjóra og deildastjóra í iðn- og starfsnámi að skipulagi 

 · taka þátt í að skipuleggja aðgerðir til að stuðla að betri líðan og farsæld nemenda í skólanum 

· sitja í stoðþjónustuteymi skólans 

Öll atriði eiga við um dagskólanema, kvöldskólanema og dreifnámsnema. 

Menntunar- og hæfniskröfur

Háskólamenntun og leyfisbréf náms- og starfsráðgjafa skv. lögum nr. 35/2009. 

Menntun sem tengist iðn- og starfsnámi, félagsráðgjöf, fjölskylduráðgjöf og skyld menntun er eftirsóknarverð. 

Mikilvægt er að viðkomandi hafi góða hæfni í að vinna með töflureikni og greina gögn. 

Auglýsing birt11. júní 2025
Umsóknarfrestur23. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Mosavegur 1A, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar