Klettabær
Klettabær
Klettabær

Vaktasmiður

Við leitum að vaktasmið!


Við leitum að skipulögðum og lausnamiðuðum einstaklingi í starf vaktasmiðs hjá Klettabæ.

Um starfið

Sem vaktasmiður berð þú ábyrgð á gerð og yfirferð vaktaplana fyrir starfsfólk félagsins, í nánu samstarfi við stjórnendur og aðra lykilstarfsmenn. Meginhlutverk er að tryggja að vaktaplön séu í samræmi við kjarasamninga, vinnulöggjöf og þarfir félagsins.

Þú verður hluti af samhentu teymi í mannauðsdeild sem vinnur markvisst að því að styðja við stjórnendur og bæta verkferla í vaktakerfum.

Helstu verkefni:

  • Skipulagning og yfirferð vaktaplana fyrir starfsmenn í vaktavinnu

  • Samstarf við stjórnendur við gerð vaktaplana

  • Tryggja að vaktaplan fylgi kjarasamningum og lögum

  • Taka þátt í greiningum og umbótaverkefnum tengdum vaktakerfi

  • Skil á skýrslum sem við á til stjórnenda

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af skipulagningu vakta eða störfum í vaktakerfum er mikill kostur

  • Þekking á MTP kerfinu er mikill kostur

  • Þekking á kjarasamningum og vinnurétti er æskileg

  • Góð tölvukunnátta – sérstaklega í Excel og/eða vaktakerfum

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, nákvæmni og góð samskiptahæfni

Hljómar þetta eins og þú?

Fyrir frekari upplýsingar um starfið, hafðu samband við Hólmar Frey Sigfússon, mannauðsfulltrúa í gegnum [email protected]

Auglýsing birt11. júní 2025
Umsóknarfrestur30. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Suðurhraun 10, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar