

Launafulltrúi - afleysingarstarf í eitt ár
Fjármáladeild Múlaþings auglýsir starf launafulltrúa til afleysinga vegna leyfis, í 80-100% starfshlutfall. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september nk. og er ráðið í eitt ár. Leitað er að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við krefjandi og lífleg verkefni á stórum vinnustað.
Starfsfólk Múlaþings er að jafnaði um 650 talsins, sem starfa í mjög fjölbreyttum störfum en auk þess sér launadeild um greiðslu launa til kjörinna fulltrúa. Launafulltrúi er hluti af mannauðs-og launateymi sveitarfélagsins en í því starfa í dag fjórir einstaklingar.
Næsti yfirmaður er fjármálastjóri.
- Launavinnsla og skráning í launa-, mannauðs- og viðverukerfi.
- Vinnsla gagna og skýrslugerð vegna launa- og kjaramála.
- Ýmsar greiningar, samantektir og úrvinnsla tengd launamálum.
- Samskipti við stéttarfélög, lífeyrissjóði og opinbera aðila.
- Ráðgjöf til starfsfólks og stjórnenda varðandi kjara- og launamál.
- Sjá til þess að kjarasamningum sé framfylgt að hálfu sveitafélagsins og að réttur aðila sér virtur.
Launafulltrúi skal leggja áherslu á vandvirkni í starfi og skal vera kunnugt um lög og reglur sem um meðferð upplýsinga og gagna í launavinnslu sveitarfélagsins gilda.
- Stúdentspróf og/eða önnur menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
- Mjög góð tölvukunnátta og færni í excel skilyrði.
- Reynsla og þekking af launavinnslu og kerfum því tengdu (H3 og Vinnustund) mikill kostur.
- Þekking á kjarasamningum og réttindum og skyldum starfsfólks.
- Góð starfræn hæfni og leikni í upplýsingatækni.
- Áhugi að tileinka sér nýjungar í ört tæknivæddari heimi.
- Samskipta- og skipulagshæfni, frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi.
- Góð þjónustulund, nákvæm, öguð og heiðarleg vinnubrögð.
- Góð íslenskukunnátta í máli og riti skilyrði.
Heilsueflingarstyrkur.

