Reykjavík - Mannauðs- og starfsumhverfissvið
Reykjavík - Mannauðs- og starfsumhverfissvið
Reykjavík - Mannauðs- og starfsumhverfissvið

Sérfræðingur í innri miðlun

Skrifstofa starfsþróunar og starfsumhverfis leitar að sérfræðingi á sviði innri miðlunar í 100% starf. Starfið er nýtt starf og er tilgangur þess að efla upplýsingamiðlun, sameiginlega þekkingu og samheldni innan vinnustaðarins Reykjavíkurborgar.

Meðal verkefna eru stuðningur við nýjan innri samskiptamiðil, þróun og miðlun á innra upplýsingaefni og stuðningur við starfsstaði varðandi nýtingu á innri miðlum fyrir starfsfólk.

Skrifstofan er hluti af mannauðs- og starfsumhverfissviði Reykjavíkurborgar og ber ábyrgð á og veitir ráðgjöf um fræðslu, innri miðlun, heilsueflingu, öryggi og vinnuvernd. Mannauðs- og starfsumhverfissvið er staðsett í Ráðhúsi Reykjavíkur en starfið felur í sér vinnu með sérfræðingum í fræðslu og upplýsingamiðlun á öllum sviðum borgarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í innleiðingu á nýjum samskiptamiðli sem tekur við af Workplace.
  • Vinna í vefumsjónarkerfi innri vefs, stafrænu fræðslukerfi og nýjum samskiptamiðli.
  • Halda utan um samskipti við megintengiliði á sviðum borgarinnar og styðja við uppfærslu og framþróun efnis.
  • Vinna að útbreiðslu notkunar innri miðla gegnum kynningarstarf, ráðgjöf og fræðslu.
  • Vinna við efnisgerð, textagerð, hönnun og framleiðslu myndefnis, í samræmi við sérþekkingu.
  • Hugmyndavinna, markaðssetning og miðlun á fjölbreyttu efni til starfsfólks borgarinnar.
  • Þátttaka í vinnuhópum og öðrum verkefnum á sviði mannauðs, áætlanagerðar og þarfagreiningar.
  • Aðkoma að stefnumótun um innleiðingu og þróun innri miðlunar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólagráða sem nýtist í starfi, menntun á sviði mannauðsmála eða miðlunar er æskileg.
  • Reynsla af innri miðlun, samfélagsmiðlavinnu og/eða vefumsjón er skilyrði og önnur mannauðsreynsla æskileg.
  • Mjög góð færni í ritun, með ólíkum stílbrigðum og frásagnaformum.
  • Reynsla af fræðslukerfum, myndvinnslu eða framleiðslu á stafrænu fræðsluefni er kostur.
  • Færni í helstu Office forritum og áhugi á að læra á nýtt fræðslukerfi.
  • SharePoint reynsla er kostur.
  • Sjálfstæði og frumkvæði.
  • Ríkur þjónustuvilji og færni í samvinnu og samskiptum.
  • Íslenskukunnátta á stigi C2 og enskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Fríðindi í starfi
  • 36 stunda vinnuviku í fullu starfi
  • Heilsustyrkur, menningarkort og frítt í sund
  • Samgöngusamningur
  • Gott mötuneyti
Auglýsing birt4. júní 2025
Umsóknarfrestur18. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Tjarnargata 11, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SharePoint
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar