
Íslandshótel
Íslandshótel reka 18 hótel á Íslandi — Hótel Reykjavík Grand, Hótel Reykjavík Centrum, Hótel Reykjavík Sögu auk Fosshótelanna sem staðsett eru hringinn í kringum landið.
Hjá Íslandshótelum starfa þegar mest lætur um 800 manns og býður fyrirtækið upp á rúmlega 1.700 herbergi.
Íslandshotel vinnur að því markmiði að lágmarka umhverfisáhrif starfseminnar eins og kostur er. Hótel Reykjavík Grand er fyrsta hótel Íslandshótela til að hljóta Svansvottun, vottun Norræna umhverfismerkisins samkvæmt viðmiðunarreglum fyrir hótel.
---
Islandshotel are a chain of 18 hotels around Iceland - Hotel Reykjavik Grand, Hotel Reykjavik Centrum, Hotel Reykjavik Saga along with Fosshotels around the country.
Over the high season there are over 800 team members working with Islandshotel.

Grafískur hönnuður
Við hjá Íslandshótelum leitum að hugmyndaríkum og metnaðarfullum grafískum hönnuði til að ganga til liðs við markaðsteymið okkar. Við leitum að einstakling sem sýnir frumkvæði, er með gott auga fyrir smáatriðum og hefur gaman af fjölbreyttum og krefjandi verkefnum.
Helstu verkefni:
- Hönnun og uppsetning bæklinga, auglýsinga, matseðla og kynningarefnis
- Hönnun á efni fyrir auglýsingaherferðir, viðburði og sýningar
- Hönnun og þróun á upplýsingagrafík, merkingum, skýrslum og vefborðum
- Mörkun, vörumerkjagerð og útlitshönnun fyrir samfélagsmiðla
- Hönnun fyrir innanhús- og utanhússmerkingar, bása og önnur sérverkefni
Hæfniskröfur:
- Menntun og reynsla í grafískri hönnun
- Framúrskarandi færni í Adobe Creative Suite (Illustrator, InDesign, Photoshop)
- Þekking á prent-, vef- og samfélagsmiðlum
- Reynsla í ljósmyndun og á hreyfigrafík er kostur
- Sköpunargleði, frumkvæði og auga fyrir smáatriðum
- Góð samskiptahæfni og færni til að vinna sjálfstætt og í teymi
Við bjóðum:
- Fullt starf í lifandi og skapandi starfsumhverfi
- Fjölbreytt og spennandi verkefni með sterkum vörumerkjum
- Frábært samstarfsfólk og tækifæri til vaxtar
Sendu okkur ferilskrá og sýnishorn af verkum þínum fyrir 20 júní.
Við tökum vel á móti öllum sem hafa áhuga og sýna frumleika og metnað í verkum sínum.
Nánari upplýsingar veitir Rakel Ármannsdóttir, Markaðsstjóri [email protected]
Auglýsing birt30. maí 2025
Umsóknarfrestur13. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (8)

Umsjón með samfélagsmiðlum og ungliðastarfi
Amnesty International

Systems Administrator / Kerfisstjóri
RVX Productions ehf.

Google Ads sérfræðingur
Hér&Nú

Digital Marketing specialist / Markaðssérfræðingur
Hertz Bílaleiga

Markaðsfulltrúi
BIOEFFECT ehf.

Markaðsfulltrúi
Útilíf

Sölufulltrúi Dagvöruverslanna
Rún Heildverslun

Markaðsstjóri
Deluxe Iceland