Hér&Nú
Hér&Nú
Hér&Nú

Google Ads sérfræðingur

Hér&Nú leitar að einstaklingi með sérþekkingu og reynslu af Google Ads. Við leitum að einstaklingi sem langar að takast á við síbreytilegan og ört stækkandi heim stafrænna markaðsaðgerða. Viðkomandi þarf að búa að þekkingu, sýn, getu og vilja til að ná árangri í uppbyggingu markaðsmála fyrir fjölbreytta flóru fyrirtækja og fólks. Framúrskarandi samkiptahæfni sem nýtist í starfi er mikilvæg.

Nánari upplýsingar veitir Guðjón Ólafsson ([email protected]), framkvæmdastjóri birtinga.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn samskipti við viðskiptavini, með tilheyrandi þarfa- og markhópagreiningu.
  • Undirbúa, ákveða, setja upp og fylgja eftir auglýsinga- og markaðsherferðum á Google.
  • Kafa í Google Ads og greina tækifæri sem hægt er nýta.
  • Greina niðurstöður herferða, gögn og mismunandi strategíur til að veita bestu mögulegu ráðgjöf sem hámarkar ROMI-árangur.
  • Vinna að áætlun og skilvirkni í nýtingu birtingafjármagns.
  • Vinna með markaðsráðgjafa-, hugmynda- og hönnunarteymi að þróun herferða og auglýsinga.
  • Fylgjast með, læra, þróa og sækjast eftir þekkingu á leiðandi tækni.
  • Viðskiptaöflun.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af Google Ads skilyrði.
  • Góð þekking á tölfræði og tölfræðigreiningu auk getu til að vinna með tölfræðigreiningartæki (t.d. Google Analytics, Accuranker/Semrush, Looker Studio)
  • Reynsla af umsjón birtinga á stafrænum miðlum.
  • Reynsla af Facebook Business & Ads Manager kostur.
  • Ástríða fyrir auglýsingamálum og gott auga fyrir straumum og stefnum.
  • Miklir samskiptahæfileikar og geta til að vinna í hóp.
Auglýsing birt30. maí 2025
Umsóknarfrestur12. júní 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Bankastræti 9, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GooglePathCreated with Sketch.Google AnalyticsPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar