

Brennur þú fyrir upplýsingatækni, skýjalausnum og þjónustu?
Sérfræðingur í sölu- og viðskiptatengslum
Tölvuþjónustan leitar að drífandi einstaklingi með sterk tengsl , skilning á upplýsingatækni og hvernig hún getur skapað virði.. Þetta er nýtt hlutverk þar sem þú leiðir áfram þróun á vöruframboði og sölu á sérsniðnum, upplýsingatækni- og upplýsingaöryggislausnum sem hjálpa íslenskum fyrirtækjum að ná meiri árangri.
Við leitum að blöndu af frumkvæði, forvitni og færni til að tengja saman tæknifólk og viðskiptavini – og skapa þannig árangur fyrir báða aðila.
· Þróun á vörum og þjónustum með stuðningi sérfræðinga.
· Byggja upp viðskiptasambönd og viðskiptatækifæri
· Sölu- og þjónustutenging: aðstoð við fyrirtæki að finna réttu tæknilausnirnar.
· Framsetning og kynning þjónustu: markaðsefni, viðburðir og samfélagsmiðlar.
· Áhugi og góður skilningur á upplýsingatækni og fyrirtækjamarkaði.
· Reynsla eða menntun í markaðs- og sölumálum, upplýsingatækni eða verkefnastjórnun.
· Frumkvæði og hæfni í samskiptum og tengslamyndun.
· Jákvætt viðhorf og brennandi löngun til að læra og vaxa í starfi.
· Spennandi nýtt hlutverk í ört vaxandi upplýsingatæknifyrirtæki.
· Samstarf við öflugt tækniteymi og aðgengi að einstökum sérfræðingum.
· Sveigjanlegt starfsumhverfi og tækifæri til að auka þekkingu og reynslu.
· Samkeppnishæf kjör og virðing fyrir jafnvægi milli vinnu og einkalífs.













