
VÍS
VÍS er framúrskarandi vinnustaður með einstaka vinnustaðamenningu.
Við erum fyrirmyndarfyrirtæki, leggjum áherslu á jafnrétti og höfum útrýmt launamun kynjanna.
Við sköpum tækifæri fyrir starfsfólkið okkar til þess að vaxa og dafna – í lífi og starfi. Við bjóðum upp á nýsköpunarumhverfi og elskum hugrekki.
VÍS ætlar að breyta því hvernig tryggingar virka og þannig fækka slysum og tjónum. Við leggjum ríka áherslu á sjálfbærni því við vitum að það er framtíðin.

Sölu- og þjónusturáðgjafi á Akranesi
Við leitum að sölu- og þjónusturáðgjafa á nýja þjónustuskrifstofu VÍS á Akranesi. Skrifstofan verður í sama húsnæði og Íslandsbanki, á Dalbraut 1. Viðkomandi þarf að búa yfir framúrskarandi þjónustulund og hæfni til að veita nýjum og núverandi viðskiptavinum á einstaklingsmarkaði þjónustu og ráðgjöf.
Starfið er fjölbreytt og krefjandi og hentar einstaklingum sem hafa ástríðu fyrir þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að veita framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf til viðskiptavina í gegnum síma, netspjall, tölvupóst og á þjónustuskrifstofu
- Frumkvæðissamskipti og sala í samræmi við þarfir hvers og eins
- Fagleg og persónuleg ráðgjöf varðandi tryggingar og tjón
- Ráðgjöf um greiðsluleiðir og innheimtumál
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Góð samskiptahæfni
- Framúrskarandi þjónustulund, ástríða og metnaður fyrir því að veita úrvalsþjónustu
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Skipulag og öguð vinnubrögð
- Góð færni í töluðu og rituðu máli á íslensku og ensku, pólskukunnátta kostur
Fríðindi í starfi
- Framúrskarandi vinnustað með einstaka vinnustaðamenningu
- Fyrirmyndarfyrirtæki með áherslu á jafnrétti
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
- Heilsufarsskoðun og bólusetningu
- Virkt starfsmannafélag sem býður m.a. upp á golfklúbb og aðgang að orlofshúsum
Auglýsing birt9. maí 2025
Umsóknarfrestur25. maí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Dalbraut 1, 300 Akranes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölufulltrúi - Hlutastarf um helgar
Kúnígúnd

Sölumaður
Aflvélar ehf.

Framúrskarandi þjónusta við greiðendur
Inkasso

Sölufulltrúi í framtíðarstarf
Gæðabakstur

Við leitum að þjónusturáðgjafa á Egilsstöðum
Arion banki

Söluráðgjafi í álgluggum
BYKO

Sumar/framtíðarstarf.
Bílasala Reykjaness ehf.

Ráðgjafi í þjónustuver HMS á Sauðárkróki
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Viltu starfa hjá alþjóðlegri vátryggingamiðlun?
Tryggja

Brennur þú fyrir upplýsingatækni, skýjalausnum og þjónustu?
Tölvuþjónustan

Sölufulltrúi í Icewear Hveragerði
ICEWEAR

Sölufulltrúi - Hlutastarf um helgar
Heimilistæki ehf