Kubbabúðin - Skapandi hlutastarf

Kubbabúðin í Smáralind óskar eftir að ráða kraftmikinn, þjónustulundaðan og jákvæðan sölufulltrúa í hlutastarf með áherslu á sölu og ráðgjöf til viðskiptavina. Í Kubbabúðinni leggjum við mikla áherslu á að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og er starfsfólk okkar sérfræðingar þegar kemur að LEGO. Um er að ræða tímabundið starf til lok septembers 2025 þar sem unnið er aðra hvora helgi.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.


Helstu verkefni sölufulltrúa eru:

  • Sala, ráðgjöf og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini verslunarinnar
  • Áfyllingar, framstillingar og móttaka á vörum
  • Afgreiðsla á kassa og önnur almenn verslunarstörf


Kröfur um hæfni og reynslu:

  • Reynsla af sölu- og verslunarstörfum
  • Framúrskarandi þjónustulund og áhugi á sölustörfum
  • Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Snyrtimennska og auga fyrir framstillingu vara
  • Góð samskiptahæfni, kurteisi og jákvæðni

Umsóknarfrestur er til og með 23. maí 2025.

Nánari upplýsingar um starfið veitir mannauðsstjóri, Thelma Dögg, í gegnum netfangið [email protected].


A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og húsgagna. A4 leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki.  A4 rekur einnig Legobúðina í Smáralind.

Auglýsing birt13. maí 2025
Umsóknarfrestur23. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hagasmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar