

Markaðsfulltrúi
BIOEFFECT leitar að skapandi og drífandi markaðsfulltrúa með brennandi áhuga á húðumhirðu og stafrænum samskiptum. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem viðkomandi verður hluti af markaðsteymi BIOEFFECT og tekur þátt í fjölbreyttum verkefnum. Starfið felst meðal annars í umsjón og svörun á samfélagsmiðlum, samskiptum við áhrifavalda, efnissköpun og þátttöku í viðburðum.
BIOEFFECT er margverðlaunað íslenskt húðvörumerki sem byggir á íslensku hugviti, vísindum og virkni. Sérstaða vörulínunnar er virka innihaldsefnið, BIOEFFECT EGF, sem framleitt er með aðferðum plöntulíftækni í gróðurhúsi ORF Líftækni á Íslandi. Vörurnar eru framleiddar á Íslandi og því gegnir íslenska vatnið einnig lykilhlutverki í hreinleika varanna. BIOEFFECT húðvörurnar eru seldar um allan heim, í 21 landi og hafa hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga fyrir gæði og virkni. Alls starfa um 55 starfsmenn hjá félaginu, flestir á Íslandi en BIOEFFECT er einnig með starfsstöðvar í London og New York.
- Umsjón og svörun á samfélagsmiðlum
- Svörun við markaðstengdum fyrirspurnum
- Samskipti og eftirfylgni við áhrifavalda
- Þátttaka í viðburðum og öðrum verkefnum innan fyrirtækisins
- Önnur tilfallandi verkefni
- Menntun og/eða reynsla á sviði markaðsmála
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfi
- Skipulagshæfni og vönduð vinnubrögð
- Góð hæfni í textasköpun og miðlun efnis á samfélagsmiðlum
- Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku
- Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í starfi
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur fyrir vistvænar samgöngur
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Góður starfsandi og líflegt starfsumhverfi
- Öflugt starfsmannafélag

