

Atferlisfræðingur - Skarðshlíðarskóli
Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum atferlisfræðingi til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025.
Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum atferlisfræðingi til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi. Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.
Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.
Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1.-10. bekk. Í vetur eru um 490 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Atferlisgreining og atferlisþjálfun nemenda.
- Áhorf í skólaumhverfi og móta íhlutunaráætlanir í samráði við kennara og stoðteymi.
- Útbúa sjónrænt skipulag, umbunarkerfi og aðrar hagnýtar lausnir.
- Samvinna og ráðgjöf til stjórnenda, kennara og starfsfólks skólans.
- Ráðgjöf og stuðningur við nemendur og foreldra þeirra sem hluti af heildstæðri íhlutun.
- Þáttaka í þverfaglegri teymisvinnu eftir þörfum
- Vinna með félagsfærni og aðlaga námefni og námsaðstæður
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- B.A/B.S/B.ed. próf á sviði heilbrigðis-, mennta- eða félagsvísinda.
- M.A/M.S í hagnýtri atferlisgreiningu
- Þekking á SMT æskileg
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Mjög góða íslenskukunnátta
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða í tölvupósti [email protected]
Umsóknarfrestur er til 18. júní 2025.
Greinagóð ferilskrá fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.










































