Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Tímabundið starf sérfræðings í Barnahúsi

Barna- og fjölskyldustofa auglýsir eftir sérfræðing í Barnahúsi til þess að vinna með börnum og fjölskyldum sem búa við ofbeldi á heimilinu. Til að myndast er stuðst við fjölskyldumiðaða hugræna atferlismeðferð (FM-HAM) sem er gagnreynd meðferð fyrir fjölskyldur þar sem hætta er á að börn séu beitt líkamlegu- og andlegu ofbeldi á heimilinu. Markmið FM-HAM er að hjálpa börnum að takast á við áföll sem þau hafa orðið fyrir, efla foreldra til að ala upp börn sín á áhrifaríkan og öruggan hátt, efla tengsl foreldra og barna og auka öryggi á heimili þeirra. Um er að ræða nýtt úrræði í Barnahúsi í samræmi við Framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar.

Um tímabundna ráðningu til eins árs er að ræða.

Barnahús sinnir málefnum barna sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðis- og/eða líkamlegu/andlegu áreitni og ofbeldi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Meðferðarviðtöl við börn og fjölskyldur þeirra.
  • Ráðgjöf og fræðsla til barnaverndarþjónustu.
  • Skýrslu- og vottorðaskrif.
  • Þátttaka í kynningarstarfi á starfsemi Barnahúss.
  • Þátttaka í öðrum verkefnum í samráði við forstöðumann Barnahúss.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistaragráða í félagsráðgjöf, uppeldisfræðum, sálfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Viðbótarnám í fjölskyldumeðferð er æskilegt.
  • Þekking og reynsla á sviði barnaverndar og fjölskyldumeðferðar.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Sveigjanleiki og þjónustulund.
  • Góð íslensku og ensku kunnátta skilyrði og önnur tungumálakunnátta er kostur.
Auglýsing birt12. júní 2025
Umsóknarfrestur24. júní 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Gilsárstekkur 8, 109 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar