Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Sérfræðingur í félagsmiðstöðinni Zelsíuz

Félagsmiðstöðin Zelsíuz leitar að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi í félagsmiðstöð sem hefur brennandi áhuga á velferð og virkni ungmenna.

Við leitum að einstaklingi sem er tilbúinn að taka virkan þátt í daglegu og faglegu starfi félagsmiðstöðvarinnar, skapa öruggt og jákvætt umhverfi fyrir börn og unglinga og leiða kraftmikið hópstarf í samstarfi við notendur, samstarfsfólk og stjórnendur. Starfið er fjölbreytt og krefjandi, með tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á líf barna- og unglinga í sveitarfélaginu.

Starfshlutfall: 100%

Vinnustaður: Zelsíuz, Árborg

Við bjóðum:

  • Skemmtilegt og skapandi starf í framsæknu og fjölbreyttu umhverfi
  • Tækifæri til að hafa áhrif á stefnu og þróun félagsmiðstöðvar
  • Gott teymisstarf og þverfaglegt samstarf innan sveitarfélagsins
  • Sveigjanleika og stuðning í starfi

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sem sérfræðingur í félagsmiðstöð Zelsíuz munt þú:

  • Stýra daglegri starfsemi félagsmiðstöðvarinnar í samstarfi við forstöðumann
  • Skipuleggja og framkvæma fjölbreytta dagskrá í samvinnu við starfsfólk og unglinga
  • Halda utan um viðburði, félagsmiðstöðvarvef og samfélagsmiðla
  • Leiða Z-ráð og hópa- og klúbbastarf
  • Ábyrgð á miðdeildarstarfi og undirbúningi fyrir sumarstörf og vinnuskóla
  • Skila skýrslum og sinna almennri samvinnu þvert á deildir og stofnanir
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að þér sem:

  • Hefur háskólamenntun á sviði tómstunda-, uppeldis- eða félagsgreina (eða aðra sambærilega menntun)
  • Hefur áhuga og innsæi í æskulýðsstarf og velferð ungs fólks
  • Býrð yfir sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum
  • Sýnir frumkvæði og fagmennsku í verkefnum
  • Hefur góða tölvukunnáttu og framúrskarandi samskiptahæfni
  • Hefur reynslu af starfi í félagsmiðstöðvum eða frístundaheimilum (æskilegt)
Auglýsing birt11. júní 2025
Umsóknarfrestur23. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar