

Myllubakkaskóli - Skólastjóri
Reykjanesbær auglýsir starf skólastjóra í Myllubakkaskóla. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum, hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi, framsækna skólasýn og er tilbúinn að leiða skapandi skólastarf sem er í stöðugri framþróun í samtarfi við nemendur, kennara, foreldra og menntayfirvöld.
Myllubakkaskóli er heildstæður grunnskóli með um 360 nemendur og 70 starfsmenn. Umfangsmiklar endurbætur á skólahúsnæðinu standa yfir og verða nemendur um 500 talsins þegar þeim er lokið.
Einkunnarorð skólans eru virðing, ábyrgð, jafnrétti, árangur og er lögð áhersla á jöfn tækifæri til náms, heilbrigði, vellíðan og metnað í öllu því sem nemendur og starfsfólk tekur sér fyrir hendur. Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og er mikilvægt að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025 eða eftir nánara samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands.
Sótt er um starfið á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is, undir Laus störf. Umsókn um starfið fylgi starfsferilskrá, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið ásamt sýn á skólastarf og hlutverk skólastjóra sem leiðtoga.
Starfssvið:
- Veita skólanum faglega forystu.
- Móta framtíðarstefnu skólans innan ramma laga og reglugerða, í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og menntastefnu Reykjanesbæjar.
- Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans.
- Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun.
- Bera ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins.
- Stuðlar að velferð og vellíðan nemenda og starfsfólks.
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
- Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi t.d. á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða.
- Reynsla af skólastjórnun og faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi.
- Reynsla af rekstri skóla og gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana er æskileg
- Leiðtogahæfni og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni.
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Hlunnindi:
- Bókasafnskort
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó












