Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri yngsta stigs – Setbergsskóli

Laus er til umsóknar staða deildarstjóra yngsta stigs við Setbergsskóla

Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 430 talsins auk þess sem við skólann er starfrækt sérdeild fyrir börn með einhverfu. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru.

Góður starfsandi og jákvæð samskipti einkenna starfmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Við skólann er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á fjölbreytt námsumhverfi, læsi, sköpun, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. Allir nemendur í 5. – 10. bekk hafa spjaldtölvur til umráða og yngri nemendur hafa einnig aðgang að slíkum tækjum.

Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Nánari upplýsingar um skólann og það öfluga starf sem þar er unnið er að finna á heimasíðu skólans, setbergsskoli.is.

Umsækjandi þarf að hafa leiðtogahæfileika, góða og víðtæka þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla skólasýn. Deildarstjóri situr í stjórnunarteymi skólans, er faglegur leiðtogi og stýrir skólastarfi á sínu stigi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Stýrir sameiginlegu daglegu starfi innan kennslustigs í samvinnu við aðra stjórnendur.
  • Hefur yfirumsjón með verkefnum innan kennslustigs, s.s. vali, ferðum, óhefðbundum skóladögum, hátíðum, deildarskipulagi af ýmsu tagi og öðrum sameiginlegum verkefnum.
  • Annast eftirfylgni skólanámskrárgerðar og kennsuáætlana innan deildar (vikuáætlanir o.fl.) og aðfanga til kennslu.
  • Stýrir samráðsfundum deildar og styður við kennara stigs, m.a. móttöku nýrra starfsmanna deildar.
  • Tekur á hegðunarvanda nemenda á kennslustiginu og er tengiliður við foreldra nemenda.
  • Boðar og stýrir, í samráði við umsjónarkennara og aðra stjórnendur, skilafundum vegna nemenda deildarinnar.
  • Stýrir sameiginlegum verkefnum, miðlægum verkefnum og viðburðum innan deildar.
  • Annast upplýsingamiðlun deildar, s.s. fyrir fréttabréf, skólavef og til foreldra.
  • Aðstoðar kennara deildar við dagleg verkefni og veitir þeim kennsluráðgjöf.
  • Styður við kennara deildar vegna kennslu, agamála og samskipta við foreldra og stofnanir utan skólans.
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni.

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til grunnskólakennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn).
  • Leiðtogafærni og vilji til að byggja upp sterka liðsheild.
  • Frumkvæði, jákvæðni og brennandi áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina yngsta stigs.
  • Reynsla af- og/eða þekking á SMT-skólafærni og Olweusaráætlun æskileg.
  • Góðir skipulagshæfileikar, sjálfstæði í vinnubrögðum og samviskusemi.
  • Góð ritfærni og íslenskukunnátta.
  • Framhaldsmenntun og reynsla á sviði skólastjórnunar og/eða ráðgjafar æskileg.

Skilyrði við ráðningu er hreint sakavottorð.

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2025.

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025

Upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 6645880 eða í gegnum netfangið [email protected].

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt11. júní 2025
Umsóknarfrestur25. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hlíðarberg 2, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (36)
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skrifstofustjóri - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sumarstarf/tímabundið starf í mannauðs- og launadeild
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Safnstjóri skólasafns - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliðar í Krakkaberg - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Heimilisfræðikennari - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari á unglingastigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Náttúrufræði- og stærðfræðikennari á unglingastigi - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri á yngsta stigi - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérfræðingur í mannauðs- og launadeild
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á miðstigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari á miðstigi - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennarar á yngsta stig - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Pólskumælandi ráðgjafi frístunda- og menningarmiðlunar (Brúarsmiður) - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Spænskumælandi ráðgjafi frístunda- og menningarmiðlunar (Brúarsmiður) - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri tómstundamiðstöðvar - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri Veraldar - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Verkefnastjóri í einhverfudeild - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Atferlisfræðingur - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - Engidalsskóli /frístundaheimilið Álfakot
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Verkefnastjóri í félagsmiðstöð - Skarðshlíðarskóli – Skarðið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tómstundaleiðbeinandi - Verið - Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - Lækjarskóli 
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari í einhverfudeild Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði í frístund einhverfudeildar Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - einhverfudeild Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérfræðingur á athvarfið Læk
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Bjarkalundur
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Álfaberg
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Forvarnarfulltrúi - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skólastjóri - Hamranesskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri - Leikskólinn Víðivellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Steinahlíð
Hafnarfjarðarbær