

Skóla- og frístundaliði - Engidalsskóli /frístundaheimilið Álfakot
Frístundaheimilið Álfakot í Engidalsskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í tímabundið starf í sumarfrístund.
Markmið frístundastarfs er að gefa börnum og ungmennum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.
Starfið felur í sér stuðning við barn í sumar frístundastarfi skólans. Vinnutími er á bilinu 8:00-16:00
Engidalsskóli var stofnaður árið 1978. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk, nemendur eru um 200. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð - Virðing – Vellíðan
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Starfa með sumarfrístund
- Er jákvæð fyrirmynd og hefur jákvæð áhrif á einstaklina um hin ýmsu málefni sem tengist þeirra daglega lífi
- Tekur þátt í skipulagningu, undirbúning og framkvæmd á fjölbreyttu tómstundastarfi í samráði við deildarstjóra frístundastarfs.
- Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
- Veita börnum og unmennum stuðning við athafnir daglegs lífs
- Stuðla að sjálfstæði einstaklinga, efla félagsfærni og vellíðan þeirra
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu skóla- og frístundaliða og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Áhugi á faglegu starfi með börnum
- Góð íslenskukunnátta
- Samstarfs- og samskiptahæfni
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð og hafi náð 20 ára aldri.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Halldórsdóttir, skólastjóri í netfanginu, [email protected] eða síma 5554433 og Arnheidur Gudmundsdóttir deildarstjóri frístundastarfs í netfangið [email protected] eða í síma 555-4434.
Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitafélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.
Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2025.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.










































