Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennarar á yngsta stig - Víðistaðaskóli

Við í Víðistaðaskóla leitum eftir skapandi, hugmyndaríkum og drífandi umsjónarkennurum á yngsta stig skólans. Viðkomandi kennarar bætast í góðan hóp annarra starfsmanna skólans. Skólinn er vel tækjum búinn og hefur yfir góðri aðstöðu að ráða.

Í Víðistaðaskóla eru rúmlega 500 nemendur og um 100 starfsmenn. Við leggjum áherslu á fjölbreytileikann, líðan nemenda og fjölbreytta kennsluhætti. Gildi skólans eru ábyrgð, virðing og vinátta. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Við erum heilsueflandi grunnskóli sem hugsar um umhverfi sitt í anda Græn fánans.

Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og samheldni meðal þeirra sem í skólanum starfa.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu á yngsta stigi
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta

Starfshlutfall er 80-100% og er ráðning ótímabundin.

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristinsdóttir skólastjóri, í síma 6645890, [email protected]

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 23.júní 2025

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt10. júní 2025
Umsóknarfrestur23. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar