Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Skólastjóri - Hamranesskóli

Staða skólastjóra Hamranesskóla í Hafnarfirði er laus til umsóknar

Ráðið verður í stöðuna frá 1. nóvember næstkomandi.

Í Hamranesi í Hafnarfirði mun rísa heildstæður skóli fyrir börn á aldrinum 12 mánaða til 16 ára. Skólinn verður byggður samkvæmt metnaðarfullri hugmyndafræði og býður uppá spennandi tækifæri til nýbreytni í skólastarfi. Í skólanum er gert ráð fyrir frístundaheimili og félagsmiðstöð ásamt útbúi frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.

Leitað er að öflugum leiðtoga sem hefur hæfni til að mynda samhenta liðsheild og þróa jákvæðan skólabrag sem stuðlar að vellíðan, samvinnu, fjölbreytileika og sköpun í samræmi við menntastefnu Hafnarfjarðar.

Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir árangursdrifinn og hugmyndaríkan einstakling til að byggja upp eftirsóknarverðan vinnustað og leiða uppbyggingu og mótun skólastarfs frá grunni.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Skapa og móta umhyggjusamt og framsækið skólastarf í heildstæðum skóla
  • Veita skólanum faglega forystu í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og menntastefnu Hafnarfjarðarbæjar
  • Stýra daglegri starfsemi og sýna ráðdeild í rekstri
  • Sjá um mannauðsmál svo sem ráðningar, vinnutilhögun og starfsþróun
  • Þróa skólabrag í árangursríku samstarfi við starfsfólk, nemendur og foreldra
  • Vera í samvinnu við fræðsluyfirvöld í sveitarfélaginu um framtíðarsýn og stefnumótun
  • Stuðla að árangri og farsæld nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf kennara
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er kostur, helst á sviði stjórnunar og/eða menntavísinda
  • Kennslu- og stjórnunarreynsla í grunnskóla áskilin
  • Leiðtogahæfni og reynsla af faglegri forystu á sviði skólamála
  • Reynsla af áætlanagerð, rekstri og fjármálastjórnun
  • Reynsla af mannauðsmálum
  • Skipulagshæfileikar, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Samskiptahæfni og jákvætt viðmót
  • Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Hæfni í upplýsingatækni

Hafnarfjarðarbær vinnur eftir verklagi um snemmtækan stuðning við leik- og grunnskólabörn sem kallast Brúin. Í því er lögð áhersla á samþætta þjónustu við börn og fjölskyldur á fyrri stigum með aukinni samvinnu aðila í nærumhverfinu, sbr. lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí 2025.

Umsókn um starfið þarf að fylgja greinargóð starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, fyrri störfum, menntun, stjórnunarreynslu og hæfni til að sinna starfi grunnskólastjóra ásamt afriti af prófskírteinum.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, sviðsstjóri mennta- og lýðheilsusviðs, í síma 585-5800, [email protected]

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynja í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt30. maí 2025
Umsóknarfrestur1. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar