

Ert þú sjúkraliðinn sem við leitum eftir!
Sjúkraliðar á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild
Tímavinna eða fast starfshlutfall - þú velur hvað hentar þér best!
Við leitum að áhugasömum sjúkraliðum sem vilja vera hluti af spennandi og fjölbreyttu starfsumhverfi. Á deildinni færðu tækifæri til að vinna með fjölbreyttum sjúklingahópi hjarta-, lungna-, augn- og nýrnasjúklingum. Þú þróar færni þína á blandaðri deild skurð- og lyflækninga og velur þér vinnufyrirkomulag sem hentar þér best, hvort sem það er fast starf eða sveigjanleg tímavinna.
Við tökum vel á móti öllum
- Ertu nýútskrifaður? Frábært! Við veitum markvissa fræðslu.
- Hefurðu ekki unnið á Landspítala áður? Komdu bara! Við þjálfum þig vel.
- Er langt síðan þú vannst við hjúkrun? Ekkert mál, við styðjum þig í gegnum aðlögunina og hvetjum þig eindregið til að sækja um.
Af hverju að velja okkur?
Þú verður hluti af öflugum og áhugasömum hópi Sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga sem tekur vel á móti nýju samstarfsfólki. Við leggjum mikla áherslu á að veita góða einstaklingshæfða aðlögun sem er sniðin að þínum þörfum og reynslu.
Vinnuvikan er 36 stundir fyrir starfsfólk í fullri vaktavinnu og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Hvenær getur þú byrjað?
Störfin eru laus strax núna eða eftir samkomulagi. Við erum sveigjanleg og hlökkum til að heyra frá þér! Þetta gæti orðið upphafið að spennandi ferðalagi í hjúkrun.




















































