Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar - Gjörgæsla Hringbraut

Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut. Í boði er áhugavert og fjölbreytt starf með góðu samstarfsfólki og gott tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga til að þróa með sér faglega þekkingu í meðferð hágæslu- og gjörgæslusjúklinga. Boðið verður upp á einstaklingshæfða aðlögun, undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Á deildinni er einnig öflugt fræðslustarf og halda gjörgæsluhjúkrunarfræðingar og sérfræðingar í gjörgæsluhjúkrun utan um skipulag, leiðsögn og fræðslu. Á deildinni ríkir sérstaklega góður starfsandi. Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala.

Unnið er í vaktavinnu skv. vaktaskipulagi deildar. Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Störfin eru laus frá 1. september 2025 eða eftir nánara samkomulagi.

Gjörgæsla heyrir undir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu. Á deildinni starfa tæplega 90 einstaklingar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum og á öðrum deildum spítalans.

Deildin þjónar einstaklingum, bæði börnum og fullorðnum, sem þarfnast gjörgæslumeðferðar af margvíslegum ástæðum. Þar er veitt almenn gjörgæslumeðferð ásamt mjög sérhæfðri meðferð t.d. eftir hjartastopp og opnar hjartaaðgerðir, meðferð með hjarta- og lungnavél og fleira. Deildin er opin allan sólarhringinn alla daga ársins. Vinnutímaskipulag er vaktavinna og unnið er á þrískiptum vöktum.

Gjörgæsludeildarnar á Hringbraut og í Fossvogi horfa í auknu mæli til samvinnu og stendur til að sameina deildarnar tvær við flutning í nýjan meðferðakjarna. Samvinna sem þessi getur falið í sér að hjúkrunarfræðingar á Hringbraut aðstoði gjörgæsluna í Fossvogi þegar þannig stendur á og öfugt.

Við leitum eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum sem eru sjálfstæðir í starfi, með ríka þjónustulund og góða samskiptahæfni.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Sérnám í gjörgæsluhjúkrun er kostur
Framúrskarandi samskiptahæfni
Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar og færni í teymisvinnu
Frumkvæði, faglegur metnaður
Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
Góð íslenskukunnátta áskilin
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita einstaklingshæfða hjúkrunarmeðferð, ráðgjöf og stuðning til einstaklinga og aðstandenda þeirra
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Virk þátttaka í þróun hjúkrunar og uppbyggingu deildarinnar
Auglýsing birt5. júní 2025
Umsóknarfrestur20. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hringbraut 37-41 37R, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (46)
Landspítali
Sjúkraliði á legudeild geðrofssjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Ráðgjafi / stuðningsfulltrúi á legudeild geðrofssjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á legudeild geðrofssjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarnemar á 3.-4. ári með áhuga á geðhjúkrun - spennandi tækifæri á legudeild geðrofssjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í meltingarteymi
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á almennri göngudeild
Landspítali
Landspítali
Rafvirki á tæknideild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í krabbameinsþjónustu
Landspítali
Landspítali
Aðstoðarfólk á bráðamóttöku Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Ert þú sjúkraliðaneminn sem við leitum eftir!
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í fæðingarteymi
Landspítali
Landspítali
Læknir með lækningaleyfi - Hefur þú augastað á augnlækningum?
Landspítali
Landspítali
Ert þú hjúkrunarfræðingurinn sem við leitum eftir!
Landspítali
Landspítali
Ert þú sjúkraliðinn sem við leitum eftir!
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknar í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Gæðastjóri á rannsóknarkjarna
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í hjartalækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður, hlutastarf
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri á kvenlækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á barnadeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild taugasjúkdóma A3 Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Deildarstjóri mannauðsdeildar
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á vöknun í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á útskriftardeild aldraðra
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í brjóstaskurðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á Brjóstamiðstöð
Landspítali
Landspítali
Aðstoðarmaður á pípulagningaverkstæði - Tæknideild Landspítala
Landspítali
Landspítali
Aðstoðarmaður á vélaverkstæði - Tæknideild Landspítala
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í handaskurðlækningum
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í innkirtlalækningum
Landspítali
Landspítali
Kennslustjóri sérnáms í innkirtlalækningum
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á útskriftardeild aldraðra
Landspítali
Landspítali
Kennslustjóri í seinni hluta sérnáms í lyflækningum
Landspítali
Landspítali
Umsókn um launaða starfsþjálfun sjúkraliðanema skv. námskrá haustönn 2025
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Ritara- og skrifstofustörf
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Umönnunarstörf á Landspítala
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Lyfjatæknir
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Læknir með lækningaleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Sjúkraliði með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Ljósmóðir með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Heilbrigðisgagnafræðingur með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Hjúkrunarnemi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Hjúkrunarfræðingur með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Almenn störf á Landspítala
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar nýútskrifaðir óskast á starfsþróunarár á ýmsar deildir 2025-2026
Landspítali