
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Við rekum fimmtán heilsugæslustöðvar í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, þar sem við veitum samræmda þjónustu.
Einnig sjáum við um sérþjónustustöðvarnar: Heimahjúkrun í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Mosfellsumdæmi, Geðheilsumiðstöð barna, Göngudeild sóttvarna, Geðheilsuteymi HH austur, Geðheilsuteymi HH vestur, Geðheilsuteymi HH suður, Geðheilsuteymi Taugaþroskaraskanna, Geðheilsuteymi fangelsa, Geðheilsuteymi ADHD fullorðinna, Samhæfingastöð krabbameinsskimanna, Upplýsingamiðstöð, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu auk stoðþjónustu á skrifstofu.
Heilsuvera er samstarfsverkefni okkar og Embættis landlæknis. Þar er hægt að hafa samskipti við starfsfólk heilsugæslustöðvanna og fræðast um heilsu og áhrifaþætti hennar.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur á að skipa sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem vinnur í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði þeirra fær að njóta sín.
Starfsfólk heilsugæslunnar vinnur að því að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan byggir á sérþekkingu og víðtæku þverfaglegu samstarfi.

Hjúkrunarfræðingur-Sólvangur
Heilsugæslan í Sólvangi auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í tímabundið starf til sex mánuða. Starfshlutfall er 40-50%. Ráðið verður í starfið frá 1. febrúar n.k. eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf og spennandi vettvang fyrir hjúkrunarfræðing sem hefur áhuga á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Reynsla af skóla- og/eða heilsugæsluhjúkrun kostur
Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
Faglegur metnaður og áhugi á að vinna með börnum
Sjálfstæði í starfi
Reynsla af og áhugi á teymisvinnu
Góð íslensku- og enskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssviðið er heilsugæsluhjúkrun með megináherslu á skólaheilsugæslu og almenna móttöku á heilsugæslustöð. Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni. Starfssvið í móttöku er mjög víðtækt, allt frá símaráðgjöf til bráðaþjónustu.
Auglýsing birt6. janúar 2022
Umsóknarfrestur20. janúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Álfabakki 16, 109 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
HjúkrunarfræðingurMetnaðurSjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (7)

Hjúkrunarfræðingur í heilsuvernd skólabarna
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Seltjarnarnes
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Hvammi - tímabundið starf
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Fjörður
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sérfræðingur notendaaðstoð - deild rafrænnar þjónustu HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Glæsibæ
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Ljósmóðir - Heilsugæslan Mosfellsumdæmi
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Sambærileg störf (12)

Hjúkrunardeildarstjóri dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í Áhættumati persónutrygginga
TM

Viðskiptastjóri í hjúkrunarvörum og heilbrigðislausnum
STOÐ

Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á bráðalegudeild lyndisraskana
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Landspítali

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á bráðalegudeild lyndisraskana
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar á skurðlækningadeild Fossvogi
Landspítali

Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Landspítali

Sjúkraliði á skurðlækningadeild Fossvogi
Landspítali