

Hjúkrunarfræðingur - Göngudeild Barnaspítala Hringsins
Göngudeild Barnaspítala Hringsins auglýsir laust til umsóknar starf hjúkrunarfræðings með áherslu á þjónustu við börn og ungmenni með sykursýki og fjölskyldur þeirra. Starfshlutfall er 40%, unnið er í dagvinnu. Ráðið er í starfið frá 1. júní 2022 eða eftir nánara samkomulagi.
Starfið felur m.a. í sér fræðslu, stuðning og ráðgjöf við börn og ungmenni með sykursýki og fjölskyldur þeirra. Í boði er áhugavert, fjölbreytt og krefjandi starf með fjölþætt viðfangefni tengd sykursýki barna/ ungmenna og fjölskyldum þeirra. Unnið er í þverfaglegu teymi. Spennandi tækifæri fyrir hjúkrunarfræðing sem hefur áhuga á þróun og eflingu hjúkrunar barna og ungmenna með sykursýki og fjölskylda þeirra. Góð aðlögun er í boði.
Barnaspítali Hringsins hefur forystu í heilbrigðisþjónustu við börn og unglinga á Íslandi. Þar er veitt fjölbreytileg heilbrigðisþjónusta sem krefst mikillar sérhæfingar.






































