

Háskólamenntaður starfsmaður á erfða- og sameindalæknisfræðideild/ tímabundin starf til eins árs
Við leitum eftir jákvæðum, sjálfstæðum og metnaðarfullum einstaklingi til starfa á erfða- og sameindalæknisfræðideild. Deildin heyrir undir rannsóknarþjónustu og þar fara fram greiningar, vísindarannsóknir, ráðgjöf og kennsla heilbrigðisstétta í faginu. Starfið er tímabundið til eins árs og er upphaf starfa samkomulag en æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Á deildinni starfa um 45 einstaklingar í öflugu þverfaglegu teymi. Góður starfsandi er ríkjandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði og markvisst er unnið að umbótum á deildinni. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun. Vinnutími er frá kl. 8-16, virka daga og einnig er bakvakt um helgar.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.































































