RHA - Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri
RHA - Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri

RHA - Sérfræðingur við rannsóknir

RHA Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri auglýsir laust til umsóknar 100% starf sérfræðings við rannsóknir. Starfið er laust frá 1. september 2025 eða eftir nánara samkomulagi. Starfsstöðin er á Akureyri.

RHA er sjálfstæð eining innan Háskólans á Akureyri sem aflar sér einkum tekna með rannsóknaverkefnum og ráðgjöf fyrir ýmsa aðila innanlands sem utan. Hlutverk RHA er að efla rannsóknastarfsemi við Háskólann á Akureyri og styrkja tengsl hans við atvinnulífið. Einnig að vinna að þróun nýrra verkefna innan háskólans og koma þeim í réttan farveg. Næsti yfirmaður er forstöðumaður RHA. Sjá nánar á vefslóð www.rha.is.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur í sér vinnu við rannsóknir á sviði félagsvísinda- og samfélagsrannsókna auk annars sem til fellur.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistaragráða í félagsvísindum, landfræði, hagfræði eða öðrum greinum sem nýtast í starfi er skilyrði. Doktorspróf er kostur.

  • Góð þekking á eigindlegri og megindlegri aðferðafræði, skýrsluskrifum og framsetningu niðurstaðna.

  • Reynsla af þátttöku í innlendum og alþjóðlegum rannsóknarverkefnum er kostur.

  • Góð almenn tölvukunnátta og kunnátta í einu eða fleiri tölfræðiforritum er skilyrði.

  • Jákvæðni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði.

  • Góðir skipulagshæfileikar og geta til að vinna sjálfstætt og í teymi.

  • Við mat á umsóknum er tekið mið af hversu vel viðkomandi uppfyllir þarfir RHA.

Auglýsing birt21. maí 2025
Umsóknarfrestur3. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Norðurslóð 202123, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.RannsóknirPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SkýrslurPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vinnsla rannsóknargagna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar