

Aðjúnkt í hagnýtri atferlisgreiningu
Laust er til umsóknar fullt starf aðjúnkts í hagnýtri atferlisgreiningu við Háskóla Íslands. Starfið er tímabundið til eins árs og til greina kemur lægra starfshlutfall. Starfið er í þverfaglegri námsleið við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda á Menntavísindasviði og við Sálfræðideild á Heilbrigðisvísindasviði, þar sem lögð er áhersla á börn með sérþarfir.
Leitað er að einstaklingi með menntun á sviði hagnýtrar atferlisgreiningar til að sinna kennslu og rannsóknum og þróun og verkefnastýringu námsins, í samstarfi við fagaðila innan og utan Háskóla Íslands. Aðjúnktinn mun kenna og hafa umsjón með námskeiðum á sviði hagnýtrar atferlisgreiningar og verður með aðsetur í húsnæði Menntavísindasviðs.
-
Kennsla í námskeiðum á meistarastigi á sviði hagnýtrar atferlisgreiningar.
-
Þátttaka í rannsóknum.
-
Þátttaka í stjórnun og þróun náms í hagnýtri atferlisgreiningu við Háskóla Íslands.
-
Ýmis stjórnsýsluverkefni í tengslum við námsleiðina, t.d. vottun námsins.
-
Umsjón með starfsþjálfun nemenda á vettvangi.
-
Meistara- eða doktorspróf á sviði atferlisgreiningar eða skyldri grein, t.d. sálfræði.
-
Vottun sem klínískur atferlisfræðingur, t.d. frá SATÍS.
-
Reynsla af hagnýtri atferlisgreiningu í starfi með börnum er kostur.
-
Reynsla af kennslu í háskóla er kostur.
-
Rannsóknavirkni og reynsla af rannsóknasamstarfi er kostur.
-
Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti.
-
Góð samstarfsfærni og lipurð í mannlegum samskiptum.
-
Frumkvæði og sjálfsstæði í starfi.











